26.02.1945
Neðri deild: 138. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1961 í B-deild Alþingistíðinda. (5059)

254. mál, fasteignamat

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. — Ég skal ekki blanda mér neitt verulega í þetta mál, aðeins vekja athygli á tveim atriðum. Í 8. gr. er endurtekið það ákvæði, sem nú er í gildi í l., að fasteignamatsbók skuli send ókeypis öllum þeim mönnum og stofnunum, sem stjórnartíðindi eiga að fá án endurgjalds, en það eru m.a. oddvitar og hreppstjórar. Ég hefði viljað spyrja hæstv. ráðh., ef hér hefði verið, til hvers þetta eigi að vera í l., ef það er ákveðið af fjmrn. nú. eins og vera mun, að bókin skuli ekki send þessum mönnum um sveitir landsins, kostnaðar vegna. Úr því að stjórnarráðið sjálft brýtur þetta lagaákvæði nú og telur það ekki framkvæmanlegt, hví lætur ráðh. þá óátalið, að það haldist í l.? Ef ekki er hægt að framfylgja því nú, þá er það sjálfsagt ekki hægt seinna, og er þá meiningin að setja ráðuneytið í framtíðinni í sama gapastokkinn og það er í nú, — neyða það til að brjóta lög? Hér sést enginn ráðh. fremur en endranær, en ég vildi biðja hæstv. forseta að athuga, hvort ekki er rétt að fresta umr., þangað til fjmrh. verður við.

Um 2. brtt. á þskj. 1209, þar sem tekið er fram, að kærur, sem berast, eigi að vera komnar í hendur ráðuneytinu, áður en 2 mánuðir eru. liðnir frá því, að matið var tilkynnt eiganda fasteignárinnar, vildi ég fá skýringu. Sams konar orðalag er í ýmsum l. Kærur eiga að vera komnar til yfirskattan., t.d., vissum tíma eftir að skattaúrskurðir eru tilkynntir, en spurningin er: Hvenær eru t.d. matsúrskurðir tilkynntir? Er það, þegar tilkynning er gefin út eða þegar hún berst viðkomanda í hendur? Ef hann býr í Dýrafirði eða Önundarfirði eða í nyrztu sveitum Norður-Múlasýslu, geta liðið 2 mánuðir frá því að úrskurður er gefinn út í Reykjavík þangað til hann berst manninum. Auk þess eru dæmi til, að úrskurðir tefjist af öðru en slæmum póstflutningum. Einu sinni lá úrskurður í skrifstofu hjá sýslumanni h.u.b. 5 vikur eftir að hann var dagsettur. Ég held, að þarna þyrfti að taka skýrar til orða í lögunum.