29.09.1944
Efri deild: 52. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 280 í B-deild Alþingistíðinda. (506)
149. mál, ljósmæðralög
Forsrh. (Björn Þórðarson):
Herra forseti. Eins og tekið er fram í niðurlagi aths. við þetta frv., þá ber að skoða það sem till. til bráðabirgðaráðstafana, þangað til ljósmæðraskipunin í landinu verður tekin til endurskoðunar á ný. En frv. er fram komið vegna þess, að í ljósmæðrastéttinni, eins og í öðrum stéttum, þar sem þörf er kvenlegra vinnukrafta hér í landinu, hefur það sýnt sig, að mjög mikill skortur er á því, að til séu ljósmæður eins og þarf í mörgum héruðum á landinu. En sú er sök þessa, að ljósmæðraumdæmin eru svo lítil og aukatekjur fyrir ljósmóðurstörf þar því svo litlar, og í sumum árum engar, að það er alls ekki eftirsóknarvert fyrir konur, sem eru búnar góðum starfshæfileikum, að leggja sig eftir því starfi. Er í aths. frv. þess lítillega getið, hversu er háttað um þetta í strjálbýlum sveitum í landinu. Í sumum ljósmæðraumdæmunum fæðist ekki eitt einasta barn á ári og í öðrum kannske eitt til tvö börn. Ef hins vegar ljósmæðraumdæmum væri steypt saman, kannske tveimur, kannske þremur, í eitt ljósmóðurumdæmi, þar sem strjálbýlast er, þá væri kannske von til þess, að þar fengjust nýtar ljósmæður til að sækja um þennan starfa þar, ef þá jafnframt væri heimilað, að samanlögð grunnlaun þessara ljósmóðurumdæma, sem gerð væru í hverju tilfelli að einu, væru veitt einni konu, — og um þetta fjallar þetta frv. Ljósmæðraskipunin er nú yfirleitt þannig, að venjulegast er einn hreppur eitt ljósmóðurumdæmi. En hins vegar má fara nærri um það að víða hagar svo til, að það er auðvelt fyrir sömu ljósmóður að gegna störfum, yfirferðarinnar vegna, í fleiri heldur en einu hreppsfélagi, og fer það auðvitað eftir því, hvað samgöngur eru greiðar.
Mér hefur verið tjáð, að ef þetta frv. fengi framgang, þá mundi á nokkrum stöðum vera von til þess, að það mætti fá ljósmæður til þess að sækja um starfið, ef launakjörin væru sett í samræmi við það, sem í frv. greinir.
Ég óska þess, að þessu frv. verði, að lokinni þessari umr., vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn. Og af því að frv. er mjög einfalt, þá vænti ég þess, að sú hv. n. muni skjótt komast að raun um, hvort frv. er að hennar áliti á rökum reist, og afgreiði það því með hraða.