21.09.1944
Sameinað þing: 46. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 363 í D-deild Alþingistíðinda. (5081)
127. mál, landhelgisgæzla og björgunarstarfsemi
Flm. (Sigurður Bjarnason):
Herra forseti. — Með fullveldisviðurkenningunni 1918 var þeirri skipun komið á gæzlu íslenzkrar landhelgi, að Ísland tók að sér að gæta íslenzkrar landhelgi á móti sambandsþjóð sinni, Dönum, þ. e. a. s. þeir höfðu heimild til að taka gæzluna að einhverju leyti í sínar hendur. Það var fyrst og fremst gert ráð fyrir, að sambandsþjóðin hefði landhelgisgæzluna með höndum, en hún var mjög ófullkomin og Íslendingum í senn til skaða og skapraunar. Þess vegna var heimildin, sem Íslendingar öðluðust til að taka gæzluna í eigin hendur, fljótlega notuð. Landsmenn fundu, að sjálfs er höndin hollust, og síðan hefur gæzlan vaxið frá lítilli byrjun samhliða gæzlu sambandsþjóðarinnar til gæzlu, sem Íslendingar hafa borið af allan veg og vanda.
Þessi mál hafa um skeið verið alveg í okkar höndum, og mun svo verða í framtíðinni. Við stöndum nú á tímamótum, sem leiðir af þeim atburðum, sem gerzt hafa í sjálfstæðismálinu. Þess vegna er tímabært að taka þessi mál til athugunar nú, og það eru nokkur atriði, sem vert er að íhuga. Það, sem fyrst verður að gera sér ljóst, er, að það er sérstaklega þýðingarmikið, að landhelgisgæzlan sé vel starfrækt, því að sú starfræksla snertir erlendar þjóðir. Gæzla Íslands á landhelginni snertir erlendar þjóðir, sem sækja á miðin hér, og er því nokkur auglýsing á því, hvernig þjóðin heldur uppi löggæzlu í landhelgi sinni. Þess vegna er það vitað mál, að ef hún er illa starfrækt, gæti það orðið þjóðinni til mikils álitshnekkis og tjóns út á við. Þá má einnig benda á, að í sambandi við landhelgisgæzluna er nú rekin hjálpar- og björgunarstarfsemi. Kröfurnar til björgunarstarfsemi og eftirlits með bátaflotanum aukast stöðugt, og er það að vonum. Það verður að teljast eðlilegt, að þetta starf verði samræmt sem mest löggæzlustarfinu. Um þetta hafa einnig komið fram ítrekaðar till. frá sjómönnum og útgerðarmönnum. Má einnig ætla, að ríkissjóði sé að því sparnaður. Um þetta var um tíma nokkuð deilt, en nú eru menn sammála um, að það beri að samræma þetta tvennt.
Þá má í þriðja lagi benda á, að þau skip, sem stunda þessi störf, mundu einnig geta sinnt vísindastarfsemi, svo sem hafrannsóknum og djúpmælingum í þágu atvinnulífsins. Slíkar rannsóknir gætu farið fram í sambandi við landhelgisgæzluna, án mikils aukakostnaðar.
Það er af þessu auðsætt, að nauðsyn ber til, að svo þýðingarmikil og fjölþætt starfsemi geti farið fram með markvissari hætti en hingað til. Það er ekki þar með sagt, að sú stofnun, sem varðskipin heyra nú undir, hafi ekki unnið eins og tök hafa verið á. Skipaútgerð ríkisins hefur samt fyrst og fremst annað hlutverk með höndum, nefnilega strandferðirnar, sem eru með öllu óskyldar löggæzlunni og björgunarstarfseminni. Það er því óeðlilegt, að löggæzlan heyri undir þessa stofnun. Þar sem hins vegar er um jafnvíðtækan rekstur að ræða, sýnist vera eðlilegt, að sérstök stofnum annist hann, og er ég þá kominn að kjarna till., sem hér liggur fyrir, sem sé, að ríkisstj. verði falið að undirbúa þá skipulagsbreyt. á stjórn ísl. landhelgisgæzlu, að komið verði á fót sérstakri stofnun, sem hafi með höndum stjórn allra eftirlits- og björgunarskipa ríkisins.
Það leiðir af sjálfu sér, að yfirstjórn þeirrar stofnunar verði valin með það fyrir augum, að þar gæti sérþekkingar og að forustumennirnir verði sérstaklega menntaðir til þess að geta tekið að sér þau ábyrgðarmiklu störf.
Í síðari hluta till. er svo minnzt á athugun á því að samræma allt björgunar- og eftirlitsstarf við strendur landsins. Það er nú skoðun meginþorra útgerðarmanna og sjómanna, að slíkt sé nauðsynlegt, og einnig, að það beri að fara aðra stefnu í þessu en farin hefur verið um skeið, nefnilega, að frekar beri að hafa fá skip og stór en mörg skip og smá. Það má nefna dæmi til sönnunar því, hve ófullkomin strandgæzlan er nú, eins og þegar erlendir veiðiþjófar hafa numið á brott yfirmenn á íslenzkum varðskipum og þau orðið að sætta sig við það. Slíkt er náttúrlega mjög svo niðurlægjandi fyrir okkur.
Slíkt virðingarleysi fyrir löggæzlu við landið er ekki til þess að auka álit okkar erlendis. Ég vil benda á það, að landhelgisgæzlan er eitt af stærstu fullveldismálum þjóðar okkar. Við sækjum mestan hluta þjóðarauðs okkar í hafið við strendur landsins, og það er okkur því höfuðnauðsyn að vernda þessa auðlind okkar sem bezt, og það er með öllu ósæmandi að standa ekki sérstaklega vel á verði um þennan hluta lands okkar, því að vissulega er landhelgin hluti af landinu.
Þessi skipulagsbreyting mun ef til vill verða til nokkurs kostnaðarauka fyrir ríkið, en ég hygg, að hann verði ekki mikill samanborið við mikilvægi þessa rekstrar. Árið 1942 var rekstrarhallinn á landhelgisgæzlunni 1½ millj. kr., en sama ár er rekstrarhallinn á Skipaútgerð ríkisins á þriðju millj. kr. Ég hygg, að þótt varðskipin fengju sérstaka yfirstjórn, þá mundi þessi kostnaður þó ekki verða það miklu meiri, að Alþ. þyrfti þess vegna að fælast frá því að gera þessa nauðsynlegu breytingu. Ég vil svo gera það að till. minni, að þessari þáltill. verði vísað til allshn., en ef hæstv. forseti telur, að hún eigi frekar heima í fjvn., þá mun ég hlíta því.