21.09.1944
Sameinað þing: 46. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 370 í D-deild Alþingistíðinda. (5087)
127. mál, landhelgisgæzla og björgunarstarfsemi
Jóhann Jósefsson:
Ég stend ekki upp til þess að blanda mér í þær deilur, ef svo má kalla, sem hér hafa farið fram milli tveggja hv. þm. En ég vildi aðeins minna á það í þessu sambandi, að það eru nú 25 ár síðan Vestmannaeyingar hófust handa til þess að eignast björgunarskip, sem síðar varð björgunar- og eftirlitsskip. Það var gamli Þór, sem keyptur var til landsins, og má segja fyrir allsherjar félagsskap allra Vestmannaeyinga. Starfaði þetta skip þar við Eyjarnar að björgunar- og eftirlitsmálum. Síðan var skipið keypt af ríkinu. Með Þór var hafin sú byrjun á íslenzkri strandgæzlu, sem síðan hefur aldrei fallið niður, heldur batnað með fleiri skipum og margvíslega breyttri tilhögun.
Það er oft hlaupið yfir þetta atriði. Ég segi það ekki til þeirra hv. þm., sem voru að tala, en þetta framtak Vestmannaeyinga gleymist oft þegar þeir, sem standa hér fremstir í slysavarnarfélögum, eru að halda minningarræður sínar og líta yfir farinn veg. Það vill gleymast, að liðinn er fjórðungur aldar síðan þetta starf var hafið á svo myndarlegan hátt í Vestmannaeyjum, að menn létu sér ekki nægja minna en að kaupa gufuskip til þessara hluta. Það var að vísu fjárhagslega mikil raun — og má segja kannske ofraun á þeim tíma — að ráðast í þetta. En ég ætla, að ekki verði um það deilt, að þetta framtak á þeim tíma varð til þess að vekja þingið og ríkisstj. þeirrar tíðar til þess að hefjast handa um innlenda landhelgisgæzlu og um leið að samræma hana björgunarstarfsemi. Er ég þá kominn inn á það, sem báðir þeir hv. þm., sem talað hafa, minntust á og voru þó sammála um. Reynslan hefur sannað, að við höfðum rétt fyrir okkur, sem í þá daga störfuðum að þessum málum, skrifuðum opinberlega og héldum fundi til að sanna landsmönnum þörfina á þessu tvennu, landhelgisgæzlu og björgunarstarfsemi, og að björgunarskip þyrfti að hafa greinilega yfirburði yfir þau skip fiskiflotans, sem því er ætlað að aðstoða. Í öðru lagi það, að landhelgiseftirlit og björgunarstarfsemi geti í langflestum tilfellum verið framkvæmt af sama skipi og undir sömu stjórn. Þessu var haldið fram upphaflega gegn talsverðum andróðri þá.
Í sambandi við málið, sem hér liggur fyrir, vil ég geta þess, að hjá sjútvn. Nd. liggur erindi frá forstjóra Skipaútgerðar ríkisins, dags. 6. júlí s.l., um framtíðartilhögun landhelgisgæzlunnar. Erindið var nefndinni sent til athugunar frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Vil ég benda þeirri n. á, sem fær mál þetta til athugunar, að hún getur að sjálfsögðu átt aðgang að þessum plöggum hjá sjútvn. Nd., enda álít ég tilefni fyrir n. í sambandi við þetta mál að kynna sér tillögur forstjóra Skipaútgerðarinnar um tilhögun landhelgisgæzlunnar og gefa þeim gaum, ekki sízt þegar þess er gætt, hve langan tíma sá maður hefur haft forstöðu þessa á hendi.