16.10.1944
Sameinað þing: 55. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 395 í D-deild Alþingistíðinda. (5134)
102. mál, síldarverksmiðja Siglufjarðarkaupstaðar
Gísli Jónsson:
Herra forseti. — Ég vil að sjálfsögðu svara nokkru þeim ásökunum, sem beint hefur verið gegn mér. Hv. þm. Siglf. sagði, að ég hefði ekki rætt kjarna málsins. Þetta er ekki rétt. Ég benti á, að til væri önnur leið til þess að fjölga verksmiðjunum, — leið, sem kosta mundi ríkissjóð minna. Og ég benti einnig á það, að fyrir Alþ. lægju ekki nein gögn í þessu máli um, að þetta væri fjárhagsleg nauðsyn fyrir Siglufjörð. Þau hafa að minnsta kosti ekki verið lögð fram af hv. þm. Siglf. Hann fullyrti það aðeins alveg út í bláinn, að ég hefði ekki komið með neitt til að byggja á í þessu máli, en þær fullyrðingar hv. þm. eru einskis verðar.
En hv. þm. gefur nýjar upplýsingar, sem hafa ekki legið fyrir áður, það er, að engin þörf sé fyrir Siglufjörð að fá þessa ábyrgð til þess að geta fengið lán, heldur sé hér bara um að ræða spursmálið um vaxtabyrðina. Þetta ætti að gefa hv. alþm. ástæðu til að drepa þetta mál algerlega, því að sé hér aðeins um smáupphæð að ræða, er því síður ástæða til þess að viðurkenna þá aðferð, sem beitt hefur verið hér í þessu máli til þess að útvega atkvæði, og því engin ástæða fyrir hæstv. Alþ. að samþ. þessa till. Og þess vegna þykir mér vænt um þessar upplýsingar, sem hér hafa komið fram.
Hv. þm. Siglf. talaði um það, að hæstv. forseti hefði átt að víta mig fyrir ræðu mína. Ég geri ráð fyrir því, að hæstv. forseti sé orðinn það þingvanur, að hann þurfi ekki að ganga í skóla til þm. Siglf. til þess að læra það, hvenær víta á þm., og ég fór engum þeim orðum um þetta mál, sem gæfu tilefni til þess, ekki frekar en hv. þm. Siglf., sem bar það fram, að ég hefði verið með persónulegar dylgjur í garð hv. þm. Seyðf., sem ég var alls ekki með. Það er eins og hv. þm. hafi ekki hlustað á ræðu mína, og ef hann er ekki kunnugri aðalefni málsins, sem þessa verksmiðju varðar, þá hefði hann átt að fá einhvern annan mann til þess að bera það fram og ræða það. Hv. þm. Seyðf. hefur ekki mótmælt því, að hann hafi fengið peninga til þess að útvega þetta lán. Hv. þm. Siglf. sagði, að það hefði verið hægt að fá lán, en fyrir því vantað meiri tryggingu. Hann þurfti því að ná atkv. alþm. til þess að útvega tryggingu. Þannig var málið, og það hefur ekki verið hrakið af hv. þm. Siglf. Hér er því ekki um að ræða fé til þess að útvega lán, heldur fé til þess að útvega atkvæði. Ég læt aðra hv. þm. um að dæma um það, hvort hér sé um persónulegar svívirðingar að ræða.
Hv. þm. gerði samanburð á máli því, sem afgreitt var hér áðan og hann taldi, að líkt stæði á um í aðalatriðum, en það var um ríkisábyrgð á rafveituláni fyrir Keflavíkurhrepp. En það er allt annað atriði, hvort hæstv. ríkisstj. leitar til þingflokkanna um álit þeirra, áður en hún gerir einhverjar ráðstafanir, en að alþingismaður gangi á milli alþm. til þess að binda atkvæði þeirra skriflega um lán, sem nemur stórri fjárhæð, með þeirri öruggu vissu, að þingmennirnir gangi ekki frá því, sem þeir hafa skrifað undir.
Hv. þm. Siglf. vitnaði í, að nákvæmlega það sama hefði átt sér stað, þegar undirskriftirnar fóru fram um uppbæturnar til bændanna á sínum tíma. Það var þó mál, sem búið var að ræða í þingflokkunum og var til þess að spara ríkissjóði miklar fjárhæðir. Það hefur sýnt sig, að margir hv. þm. hafa breytt skoðun sinni í því máli, því að það er vitað, að ódýrasta og heppilegasta aðferðin í dýrtíðarmálunum var að láta dýrtíðina ekki fara upp, heldur greiða hana niður, eins og gert var. Á þessu tvennu er ekki hægt að gera samanburð. Á hinu breyti ég ekki skoðun minni, að það sé ósæmilegt að hafa slíkar aðferðir á hæstv. Alþ., að láta hv. alþm. skrifa undir skjal, til þess að þeir skuli standa við loforð sín í máli, sem í rauninni er fram komið til þess að afla nokkurra atkv. Það er á móti þingsköpum og óþarfi að senda málið í n., ef slík hrossakaup eiga sér stað. Um hitt segi ég ekkert, hvort þetta er einn liður í samningunum, sem gerðir voru við kommúnista (1940). Um það vita aðrir betur.