19.10.1944
Sameinað þing: 58. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 409 í D-deild Alþingistíðinda. (5146)

102. mál, síldarverksmiðja Siglufjarðarkaupstaðar

Áki Jakobsson:

Herra forseti. — Það hafa orðið miklar umr. um þetta mál, og mest af þeim umr. hefur verið þannig, að það hefur ekki snert þetta mál, sem til umr. er.

Ég hafði í fyrri ræðu minni farið nokkrum orðum um ræðu hv. þm. S.-Þ. og sé því ekki ástæðu til að endurtaka það, sem ég hafði áður sagt. Ég vil þó láta þess getið, að ég tel framkomu þessa hv. þm. óverjandi og óhafandi, og þarf enginn að hrökkva við, þó að hv. þm. S.-Þ. grípi til þess að reyna að granda málinu með persónulegum árásum, því að svona hefur hann rekið sína pólitísku starfsemi. Þessi háttur hans hefur nú orðið þess valdandi, að hann stendur nú einn uppi í sínum eigin flokki.

Ég vil benda hv. þm. Barð. á það, að hann mun ekki hafa neina upphefð af því að feta í fótspor hv. þm. S.-Þ., og vitanlega mundi hann fara sömu leiðina, ef hann ætlaði að taka upp aðferð hans. Hv. þm. Barð. hefur ekki komið með neina sönnun fyrir því, að ekki sé þörf á að reisa þessa 5 þús. mála verksmiðju. Hann ætti að koma á Siglufjörð um síldveiðitímann, þegar þar bíða um 60 skip afgreiðslu í 1–3 sólarhringa. Þetta er svo augljóst, að það þarf ekki við langrar röksemdaleiðslu til að sannfærast um, að slíkt fyrirkomulag má ekki haldast.

Full líkindi eru til, að á næstu síldarvertíð verði enn fleiri skip. Ef til vill verður þá eitthvað komið af Svíþjóðarbátunum, og sömuleiðis má ætla, að eitthvað af togurunum verði á síld. Ef ekki verður úr bætt, verður því ástandið enn verra en í sumar, og þjóðin skaðast um tugi milljóna króna. Það ætti ekki að þurfa ýtarlega ræðu til að sýna fram á, að verksmiðjurnar þurfa að stækka. Það skiptir ekki máli, hverjir reisa þær, einungis ef þær koma.

Ég benti á í fyrri ræðu minni, að þetta fyrirkomulag, að leita álits þm. utan þings, hefði verið nauðsynlegt, til þess að verksmiðjan gæti tekið til starfa 1945, og það mun verða, ef ekkert sérstakt kemur fyrir.

Þess finnast næg dæmi, að mál hafi verið afgreidd á svipaðan hátt. T.d. má nefna Keflavíkurveituna. Þar var leitað álits um þingviljann utan þingtíma, áður en framkvæmd var hafin. Að vísu var það stjórnin, sem sá um það, en ég tel, að stjórn, sem nýtur ekki stuðnings nokkurs þm., standi ekki að neinu leyti betur að vígi, enda hefur enginn þm. mælt því í mót, að þetta væri rétt aðferð, þegar þjóðarnauðsyn krefst þess, að hennar sé neytt. Hér hefur og verið á það bent, þegar samþ. voru uppbæturnar til landbúnaðarins, að á þá aðferð út af fyrir sig hafi ekki verið ráðizt, enda sennilegt, að þeir hinir sömu þm., sem voru með því utan þings, hefðu einnig verið með því á þingi.

Hv. þm. Barð. telur, að þetta muni vera einn liður í samkomulagi, sem við sósíalistar höfum gert við hv. þm. Seyðf. Nú veit þessi hv. þm., að við sósíalistar erum fylgjendur þessa máls, og ég geri fastlega ráð fyrir, að hvenær sem þetta mál hefði komið fyrir þingið, hefði hv. þm. Seyðf. verið því fylgjandi sömuleiðis.

Hv. þm. S.-Þ. hélt því fram hér í ræðu, að engir nema Siglfirðingar vildu leggja út í slíkt fyrirtæki nú á tímum. Nú hef ég séð á uppfyllingunni hér í Reykjavík fyrirferðarmiklar sendingar til Hjalteyrarverksmiðjunnar, sem munu vera vélar og annað til að stækka hana. Að vísu er mér kunnugt um, að verksmiðjustjórnin hefur ekki séð sér fært að ljúka því verki fyrir næstu vertíð, en það er ekki af fjárhagsástæðum, heldur tekniskum örðugleikum. Þá örðugleika hefur aftur á móti stjórn Rauðku ekki við að stríða og getur þess vegna lokið þessum framkvæmdum. Það er þess vegna ekki rétt hjá hv. þm. S.-Þ., að Siglfirðingar séu þeir einu, sem leggi út í slíkar framkvæmdir. Eins og áður hefur verið minnzt hér á, er full ástæða til að ætla, að þessi verksmiðja geti borið sig. Hún er búin fullkomnustu tækjum og þarf lítinn vinnukraft. Hins vegar er öllum ljóst, hvað það kostar að láta síldina eyðileggjast.

Þá sagði hv. þm. S.-Þ., að almælt væri á Siglufirði, að bera ætti fé í tvo þm. í Alþfl. og Framsfl. þessu máli til framdráttar. Þetta er mál, sem fáir þm. mundu vilja bera fram, og er það gott dæmi um bardagaaðferð þessa hv. þm. Ég ætla ekki að grafast fyrir um, hvaðan þessar getsakir eru sprottnar. Auðvitað er auðvelt að búa slíkt til og segja svo, að það hafi verið sagt.

Hér hefur verið talað um, að lántökukostnaður væri óhæfilega hár, en þess ber að gæta, að meginið af þessari upphæð mun vera kostnaður við tekniskan undirbúning verksins. Það er því alls kostar óþarfi að gera nokkurt veður út af þessari upphæð. Ég hef ekki sjálfur séð um þennan undirbúning og veit því ekki um einstaka kostnaðarliði til hlítar, en mér er kunnugt um, að meginið af þessu er verkfræðilegur kostnaður.

Ég gat þess áður, að bæjarstjórn Siglufjarðar hafði getað fengið dýr lán, en nú er hún búin að treysta á, að ríkisábyrgð fáist, og kæmi sér því mjög illa, ef það gengi ekki, enda ástæðulaust, þar sem þetta verður hin fullkomnasta verksmiðja, stjórnað af hinum hæfasta manni.

Þegar tekið er tillit til þess, að fyrirsjáanleg eru vandræði vegna verksmiðjuskorts, þá vænti ég þess, að allir þm. verði með þessu, og legg ég til, að till. hv. 2. þm. S.-M. verði samþykkt.