03.10.1944
Sameinað þing: 50. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 431 í D-deild Alþingistíðinda. (5166)

146. mál, húsnæði fyrir geðveikt fólk

Gísli Jónsson:

Herra forseti. — Ég vil taka það fram í sambandi við þessa þál., sem hér liggur fyrir, að í fyrra var gerð breyt. á hafnarl. Reykjavíkur, þannig að samþ. var, að reist skyldi skipasmíðastöð við Elliðaárvog.

Að tilhlutun mþn. þeirrar, sem vann að því máli, var gerður bráðabirgðauppdráttur af því svæði, sem skipasmíðastöðin skyldi ná yfir, og nær það svæði samkvæmt þeim uppdrætti alveg að Kleppi eða jafnvel út fyrir hann, og er því gert ráð fyrir, að Kleppur verði að hverfa burtu af þessum stað sem geðveikrahæli. Nú hefur Reykjavíkurbær látið fara fram mælingar á þessu svæði, og það hefur komið í ljós, að þetta svæði er sjálfsagt til þess að koma þar upp skipasmíðastöð. Auk þess hefur verið stofnað hér sterkt félag, h/f Skipanaust, sem ætlar sér að koma hér upp vinnustöðvum til skipabygginga og viðgerða, og þetta félag hefur einmitt fengið til umráða land á þessu áður umgetna svæði. Auk þess hefur þegar verið þrengt svo að hælinu á Kleppi með ýmsum byggingum, bæði verkamannabústöðum og öðru, að ekki kemur til mála þeirra hluta vegna að hefja viðbótarbyggingar við geðveikrahælið þar, og það er fjarstæða að ætla sér að fara að byggja nýtízku hæli á stað, sem það þarf óhjákvæmilega að hverfa af.

Þótt hægt væri að finna einhvern annan stað en Elliðaárvog, sem væri eins heppilegur fyrir skipasmíðastöð, þá er Reykjavíkurhöfn orðin svo þröng, að ekki verður öllu lengur við unað. Hún hefur m.a. ekkert svæði, þar sem hægt er að taka á móti kolum og salti, og verður því ekki hjá því komizt að stækka höfnina hér inn á bóginn.

Ég geri ráð fyrir því, að hv. fjvn. fái þetta mál til meðferðar, og vænti ég þess, að hún taki þetta til athugunar og leggi til, að þál. verði breytt þannig, að ríkisstj. verði ekki heimilt að láta byggja við Klepp og að við till. verði bætt, að ríkisstj. verði falið að undirbúa byggingu nýs hælis og það verði reist annars staðar en á Kleppi. Ef þetta verður ekki gert, þá verður ekki hjá því komizt að flytja nýja till. Út af ræðu hæstv. forsrh., þar sem hann sagði, að það hefðu verið reyndar ýmsar leiðir til þess að bæta úr þessum vandræðum, þá vil ég leyfa mér að spyrja hann, í sambandi við braggakaup ríkisstj. af setuliðinu, sem voru að vísu gerð með samþykki meiri hl. Alþ., en gegn vilja stærsta þingflokksins, hvort í þeim kaupum hafi verið stórt sjúkrahús í Kaldaðarnesi, sem mun hafa verið allmiklu betri bygging en braggar setuliðsins yfirleitt, og að þetta sjúkrahús hafi verið selt, rifið niður og flutt burtu, þannig að nú sé ekki hægt að setja það upp aftur, þannig að hægt verði að nota það sem sjúkrahús eða til íbúðar yfirleitt. Ég vildi nú spyrja hæstv. forsrh., hvort þetta væri rétt, og ef svo væri, þá einnig, hvort það hefðu áður verið athugaðir möguleikar á því að nota það sem hæli fyrir geðveika sjúklinga. Ríkið sjálft á landið þarna, og hefði því ekki þurft að flytja húsið burtu þess vegna. Ef hæstv. forsrh. hefur eins mikinn áhuga á því að bæta úr þessum vandræðum og hann vill vera láta, þá verður að teljast hart, ef annar ráðh. hefur látið rífa húsið, hafi verið hægt að nota það sem geðveikrahæli; slíkt bæri vitni um mikið ósamkomulag innan ríkisstj. Mér þótti rétt að taka þetta fram, áður en þessu máli væri þokað lengra.