03.10.1944
Sameinað þing: 50. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 437 í D-deild Alþingistíðinda. (5172)

146. mál, húsnæði fyrir geðveikt fólk

Forseti (GSv):

Till. er komin fram um það, að þessu máli verði vísað til n. Ég tel rétt að fresta þessari fyrri umr., meðan n. fjallar um málið, ef því skyldi verða vísað til einhverrar þeirrar n., sem nú hefur verið stungið upp á, og ekki er um annað að tala. Það er svo, að þetta mál hefur verið hjá fjvn. á sínum tíma og á sinn hátt. Á síðustu fjárl. var einmitt þessi heimild, sem nú er verið að tala um að fyrirskipa ríkisstj. að láta koma til framkvæmda.

Nú má segja, að það sé engan veginn svo, að það sé fjvn., sem samþ. hafi heimildina til fjárútlátanna, ef því væri að skipta, að aðstæður væru breyttar. — Og nú hefur komið fram tvennt: Að ríkisstj., sem farið hefur með þessi mál, hefur ekki séð sér fært að framkvæma þessa heimild; og svo hitt, að nú er komin fram áskorun um að láta framkvæma þessa heimild. — Þá eiga svona mál að vera hjá fjvn., þótt hún hafi fjallað um þau áður.

Hins vegar er till. komin fram um að vísa málinu til allshn., þar sem um sé að ræða að láta framkvæma verk, sem þegar sé búið að heimila.

Ég vil ekki að svo vöxnu dæma um þetta frekar. Mun ég skoða þessa síðari till. sem brtt., að vísa málinu til allshn., og verða hv. þm. að ákveða við atkvgr., til hvorrar n. málið fer.