20.11.1944
Sameinað þing: 66. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 439 í D-deild Alþingistíðinda. (5176)
146. mál, húsnæði fyrir geðveikt fólk
Bjarni Benediktsson:
Herra forseti. — Ég verð að játa, að ég varð fyrir nokkrum vonbrigðum, þegar ég las nál. hv. allshn., og skal þó játa, að verk hennar er að engu leyti slælegt. En því miður skilst mér, að eftir þá athugun, sem fram hefur farið, og eins og hv. frsm. sagði, vafalaust hefur verið ýtarleg, standi málið engu nær lausn en áður, nema síður sé, þar sem hv. n. bendir á það, sem vissulega er rétt, að nokkrum annmörkum mun vera bundið að byggja til viðbótar á Kleppi, hvort heldur er á sjálfum staðnum eða í næsta nágrenni. Mér skilst því, að nál. upplýsi ekkert annað en það, að það muni vera jafnvel enn þá erfiðara en menn hafa gert sér grein fyrir að leysa þessi mál og að n. hafi ekki á nokkurn hátt bent á neina leið til lausnar því mikla vandamáli, sem hér er um að ræða; þessu vandamáli, sem raunverulega varðar ekki í bili, hvað fyrst og fremst eigi að gera að mörgum árum liðnum og hvernig eigi að koma þessu máli fyrir í framtíðinni, heldur hvernig eigi að firra öllu heldur yfirstandandi en yfirvofandi vandræðum fjölda heimila og þar með sveitarfélaga víðs vegar um landið. Því að eins og nú standa sakir, eru menn í allmiklum vandræðum með fjölda geðveikra manna, brjálaðra sumra, úti um allt land og hér í bænum ekki síður. Þetta leiðir til þess, eins og sagt hefur verið, að leggja mikinn húskross á fjölda heimila, og veldur einnig gífurlegum kostnaði auk þess, að annaðhvort aðstandendur eða sveitarfélögin verða oft að láta fjölda manna halda vörð um þessa geðveiku eða brjáluðu menn, og slíkt ástand er auðvitað svo alvarlegt, að auðsætt er, að hið opinbera verður að láta það til sín taka að einhverju leyti og reyna hið bráðasta að leysa úr þessu núna í bili.
En það, sem verst er við þetta og gerir ástandið enn þá verra í því sjúkrahúsi, sem nú þegar er rekið, er það, að þar er miklu færra starfsfólk en þyrfti að vera, og örðugar aðstæður, og gerir það einnig að verkum, að við liggur, að starfræksla öll leggist niður, ef ekki fæst úr þessu bætt.
Eins og áður hefur verið tekið fram, eru þessi vandræði tvenns konar. Annars vegar er að fá aukið húsnæði frá því, sem verið hefur, og svo hins vegar það, sem enn þá síður má bíða, en það er að fá starfsfólk til að sinna störfum í því húsnæði, sem þegar er fyrir hendi, svo að það verði nýtt til fulls, og til þess að vinna á nýjum stöðum, ef að einhverju leyti yrði um aukningu að ræða. Mér finnst, að n. hafi gersamlega gefizt upp við að finna nokkra leið út úr þessu, heldur aðeins bent á það, sem vitað er, að hér sé um mikið vandamál að ræða. En þó er það svo, að till. hafa legið frammi um það, hvernig úr þessu ætti að bæta að einhverju leyti. En n. vill annaðhvort ekki taka tillit til þeirra eða segir, að þær séu óframkvæmanlegar. Mér skilst þó, að sumar þessar till., sem fyrir liggja, t.d. þessi, hvort hægt sé að taka einhvern hluta af sjómannaskólanum nýja, meðan hann er ekki notaður til annars, þar sé um að ræða atriði, sem n. fyllilega gæti tekið afstöðu til, annaðhvort með henni eða móti, og finnst mér n. standa það nærri, að hún segi álit sitt um það atriðið til leiðbeiningar fyrir hæstv. ríkisstj.
Varðandi önnur atriði þessa máls, þá hafði það áður fyrr, þegar svipað stóð á, reynzt þrautaúrræðið, m.a. vegna launagreiðslanna, að fá einstaklinga til þess að reka viðbótarheimili við Klepp. Það er kunnugum mönnum hér í Reykjavík vitanlegt, að þetta var gert um mörg ár milli 1920 og 1930, og þó var það sannast að segja sízt betra húsnæði en það, sem nú mun vera völ á. Og ég held sannast að segja, að ef ekki reynist unnt að fá menn með núverandi kaupgjaldi til þess að ganga í þjónustu ríkisins til að sinna þessum störfum, sé óverjandi fyrir stjórnarvöldin að reyna ekki hina leiðina, að vita, hvort einstaklingar, sem hafa frjálsar hendur um kaupgjald, gætu ekki tekið þetta að sér að einhverju leyti. Þótt ekki hafi tekizt betur til um stundarsakir með bráðabirgðahverfin, eins og yfirlæknirinn á Kleppi hefur bent á, dugar ekki að segja eins og hv. frsm. sagði, að það væri ekki viðunandi húsnæði til spítalahalds. Það vita allir menn, að það er það ekki. En það tjóar ekki að bera það húsnæði, sem þessir aumingja menn eiga við að búa, saman við fullkomnasta spítalahúsnæði, sem ekki er til hér. Það dugar því ekki, meðan stjórnarvöldin geta ekki bent á neina fullnægjandi lausn, að loka augunum og sinna ekki þeim úrræðum, sem þó kunna að vera fyrir hendi, þótt þau séu ekki nógu góð, því að betra er að veifa röngu tré en engu.
Ég er með þessu á engan hátt að áfellast nefndina fyrir afskipti hennar af þessu. Hún hefur, sem sagt, velt málinu mikið fyrir sér og komizt að þeirri niðurstöðu, að það væri mikið vandamál. Hún hefur alveg gefizt upp við lausn þess, og kemur það til af því, að á nm. sjálfum hvílir ekki sá mikli þungi, sem er á þeim, sem ekki komast hjá því að leysa málið vegna sinnar pólitísku afstöðu. Mér eru nokkuð kunnir, sem starfandi að bæjarmálefnum Reykjavíkur, þeir örðugleikar, sem við höfum lent í hér af þessum sökum. Bærinn hefur lagt í mikinn kostnað til þess að ráða bót á þessu og tekizt það að nokkru leyti. En við þetta hef ég kynnzt þeim ákaflegu örðugleikum, sem þessu er samfara.
Þá vil ég kröftuglega mótmæla þeirri skoðun, sem kemur fram í nál. og hv. frsm. hreyfði við, að komið gæti til mála, að ekki yrði veitt móttaka á spítalanum öðrum sjúklingum en þeim, sem ekki mættu ganga lausir og væru bandóðir. Niðurstaðan yrði sú, ef þetta yrði upp tekið, að á fáum mánuðum hefðu menn hér helmingi fleiri bandóða menn í landinu en við höfum nú, og er ótækt að láta sér detta í hug að ætla að lækna menn með slíkum hrossalækningum.
Ég skal svo ekki fjölyrða frekar um þetta, en vildi beina því til hæstv. dómsmrh., að hann athugaði gaumgæfilega, hvort ekki væri unnt að finna einhverja bráðabirgðalausn, sem að haldi gæti komið nú þegar. Og æskilegt væri nú, að mínu viti, að n. tæki málið aftur til athugunar og hefði það til frekari umr. við aðila og hæstv. dómsmrh., þar til einhver skynsamleg lausn hefur fengizt.