24.11.1944
Sameinað þing: 67. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 444 í D-deild Alþingistíðinda. (5180)

146. mál, húsnæði fyrir geðveikt fólk

Jónas Jónsson:

Herra forseti. — Ég hef leyft mér að bera fram viðaukatill. við brtt. hv. þm. Vestm., sem að nokkru leyti er sprottin upp af þeim umr., sem fóru hér fram síðast, þar sem það kom í ljós, að þrátt fyrir þá miklu nauðsyn, sem er á því að ráða fram úr þessu máli, þá hefur hvorki heilbrigðisstjórn né n. séð sér fært að koma fram með ákveðnar till. Hins vegar kom það fram í umr. þá, að ástandið er þannig, að hér á landi munu vera um 600 manns, sem þyrftu að fá aðhlynningu á geðveikrahæli, en ekki hægt að koma nema um 200 manns á núverandi hæli og þó tæplega hægt að fullnota það vegna skorts á þjónustufólki.

Það hefur enn fremur komið fram í sambandi við þetta mál, að vegna skipulags Reykjavíkur muni á sínum tíma verða að flytja núverandi hæli burt og byggja annars staðar. Þessi staðreynd verður til þess, að það verður miklu síður lagt út í að bæta við Kleppsspítalann, sem þó annars þyrfti að gera. Og þar sem nú vantar spítala fyrir 400 manns í viðbót, þá yrði óeðlilegt að hafa þetta geðveika fólk allt á einum stað og ekki hagnaður á neinn hátt. Og þar sem heilbrigðisn. Reykjavíkur hefur komið sér saman um, að rétt sé að byggja bráðabirgðaskýli fyrir geðveikt fólk á Akureyri, þá hef ég hugsað mér þann möguleika að byggja part af geðveikraspítala á Akureyri. Þar þarf hvort sem er að byggja. Og þar er ekki neinn vafi um staðinn, því að fyrirhugað hefur verið að byggja í þessu skyni nálægt spítalanum þar. — Það væri þess vegna, að mínum dómi, hentugt að byggja þar nokkurn part af geðveikraspítala; meðan verið er að finna stað handa nýjum Kleppi sunnanlands aftur. — En þar sem þetta tekur tíma og þar sem það kom í ljós í umr. um þetta efni á dögunum, að e.t.v. væri öruggust bráðabirgðalausn á þessu vandamáli það að taka part af kjallara núverandi sjómannaskóla eða þeirri byggingu í þessu skyni, þá fannst mér rétt, að það kæmi hér til atkvæða, hvað menn vildu gera í þessu efni. Læknar á Kleppi telja, að spítalanum sé heppilegt að finna stað inni í bænum. Og þar sem nú er erfitt að fá öruggt húsnæði, en mér er fullkunnugt um það, að fyrst um sinn a.m.k. verður ekki notaður kjallari undir austurálmu sjómannaskólans og verður ekki heldur á næsta ári lokið við stofurnar þar uppi yfir, heldur hinn part skólans, þar sem kennsla byrjar á næsta hausti, þá vildi ég láta koma í ljós, hvað Alþ. og heilbrigðisstjórn vildi vera láta um að taka þetta húsnæði í þessu skyni. Og hygg ég, að þetta mundi líklegust bráðabirgðalausn, einkum ef litið er á það, að það verður að líkindum leitazt við að fá karla og konur, sem önnur störf stunda hér í bæ, til þess að sinna hjúkrun til bráðabirgða í þessu skyni.

Ég vil leiðrétta misskilning, sem kom fram hjá hv. frsm. n. ((TJ), viðvíkjandi sjúkraskýlinu á Húsavík. N. hafði borizt sú frétt, að það hefði staðið autt fyrir starfsfólksleysi. Það er ekki, heldur er spítalinn í fullum gangi. En tilefni þessarar fréttar mun vera það, að aðalhjúkrunarkonan þar veiktist í haust og fór burtu, og vantaði hjúkrunarkonu í nokkrar vikur, þannig að læknar gerðu þar þá ekki stærri uppskurði um tíma. Svo raknaði úr, svo að nú er allt í lagi um þetta, eins og á að vera. Og það er alls ekki hægt að ráða bót á þessu máli, sem hér er til umr., í sambandi við þann spítala.