21.11.1944
Neðri deild: 78. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 314 í B-deild Alþingistíðinda. (52)

183. mál, nýbyggingarráð

Frsm. minni hl. ( Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. — Ég hef gefið út sérstakt nál. um þetta frv. á þskj. 524, og þar eru einnig till. um breyt., sem ég vil gera á því.

Frv. er um tvö atriði. Hið fyrra er, að færa skuli á sérstakan reikning hluta af inneign Landsbanka Íslands erlendis, og verði þeirri upphæð varið til kaupa á framleiðslutækjum. Hið síðara er um skipun n., sem nefnast skal nýbyggingarráð. 1. gr. frv. fjallar um fyrra atriðið. Samkvæmt henni á að leggja á sérstakan reikning a.m.k. 300 millj. kr. af inneign Landsbanka Íslands erlendis í því skyni, að sú upphæð verði notuð til kaupa á atvinnutækjum.

Fyrsta brtt. mín á þskj. 524 er um það, að þessi fjárhæð verði hækkuð, þannig að í stað a.m.k. 300 komi 450 millj. og að báðum bönkunum, sem eiga erlendan gjaldeyri, verði gert að skyldu að leggja fé til hliðar á þann hátt, sem áður er um getið. Það er að vísu svo, að meiri hluti af gjaldeyriseign þjóðarinnar er hjá Landsbankanum, en aðeins lítill hluti hjá Útvegsbankanum, en þó tel ég rétt, að báðir bankarnir verði látnir leggja fé til hliðar, hvor eftir sinni gjaldeyriseign.

Viðvíkjandi upphæðinni vil ég benda á, að ef þessi ráðstöfun er á annað borð gerð, er rétt að leggja meira til hliðar en ákveðið er í frv. Má í því sambandi benda á, að Alþingi hefur nýlega borizt ályktun frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands þess efnis, að eigi minna en 300 millj. kr. verði ætlaðar til eflingar sjávarútveginum. En auk þess þarf að verja miklu fé til kaupa á framleiðslutækjum í þarfir landbúnaðarins og til kaupa á efni í rafstöðvar og rafveitur á næstu árum. Ég vil enn fremur benda á, að þótt mín brtt. verði samþ., verður samt eftir álitleg upphæð, sem ekki er sérstaklega ráðstafað, þar sem gjaldeyriseign bankanna mun nú nema um 550 milljónum íslenzkra króna. Óráðstafað verður þá um 100 millj. kr., sem, a.m.k. til skamms tíma, þótti mikið fé, enda er það allt að því helmingi meira en fékkst fyrir allar útflutningsvörur okkar árlega fyrir stríðið.

Frsm. meiri hl. taldi dollaraeignina nema um 300 milljónum króna og að þetta væri eini gjaldeyririnn, sem við hefðum til frjálsrar úthlutunar. En væntanlega verðum við brátt frjálsir að fara með allan okkar erlenda gjaldeyri að eigin vild. Ég tel enga ástæðu til að óttast, að við getum ekki haft fullt gagn af innstæðunum í Bretlandi eins og dollaraeigninni. Ég vil geta þess, að við hv. 2. þm. S.-M. höfum flutt á þessu þingi frv. um gjaldeyri til kaupa á framleiðslutækjum, en samkomulag náðist ekki í fjhn. um að mæla með frumvarpinu. Þess vegna flyt ég brtt. við þetta frv., sem gengur mjög í sömu átt.

Orðin „að minnsta kosti“ í 1. gr. frv. virðast mér þýðingarlítil. Þótt það orðalag sé, mun tæplega hægt að krefjast af bankanum, að hann láti á sérstakan reikning meira en hina nefndu fjárhæð. Tel ég því réttara að hafa upphæðina ákveðna.

Ég tel þessa ráðstöfun rétta, en þó engan veginn fulltryggt með þessu, að allur þessi gjaldeyrir verði notaður til kaupa á framleiðslutækjum. Það er ekki vitað, hve fúsir menn verða að leggja fé sitt í atvinnurekstur og í kaup á gjaldeyri í því skyni. Verði taprekstur hjá atvinnuvegunum, má búast við, að því fylgi samdráttur í útflutningsframleiðslunni og þar með greiðsluhalli í viðskiptum við útlönd. Ef svo illa fer, að þjóðin hættir að vinna fyrir sínu daglega brauði og kaupir inn í landið meira af vörum til venjulegrar neyzlu en hægt er að borga af þjóðartekjunum, hlýtur svo að fara að núverandi gjaldeyriseign rýrni eða að skuldir myndist utan lands. Það þarf að stýra framhjá þessari hættu. En þótt þessi ráðstöfun, að færa meginhlutann af gjaldeyriseign bankanna á sérstaka reikninga, í því skyni að selja gjaldeyrinn þeim, sem vilja kaupa fyrir hann framleiðslutæki, sé þannig ekki út af fyrir sig örugg trygging í þessu efni, þá tel ég þó rétt að gera þetta, þar sem það er spor í þá átt að tryggja, að svo miklu leyti sem unnt er, að gjaldeyririnn verði notaður til kaupa á framleiðslutækjum og á annan hátt til styrktar atvinnulífinu. Kem ég þá að öðru aðalatriði frumvarpsins, sem er um skipun nefndar, er nefnist nýbyggingarráð. Um það fjallar 2. og 3. gr. frv. Frv. gerir ráð fyrir, að ríkisstj. skipi þessa fjögurra manna n. Mér hefði þótt eðlilegra, að Alþ. kysi n., en flyt þó ekki brtt. um það.

Nefndin á skv. frv. að gera áætlanir og tillögur um það, sem þar er nefnt nýsköpun í atvinnulífinu. Einnig að hafa milligöngu við útvegun framleiðslutækja fyrir þá, er þess óska.

Hins vegar hefur nýbyggingarráð sjálft, skv. frv., ekki ráð á neinu fé til framkvæmda. Ef talið verður eftir að athuganir hafa verið gerðar á þessum málum, að heppilegt sé eða nauðsynlegt, að ríkið leggi fram eitthvert fé til stuðnings þessum fyrirhuguðu framkvæmdum á einhvern hátt, verður því að leita heimildar Alþ. til slíkra fjárframlaga síðar, þegar þar að kemur. Engin slík heimild er í þessu frv. Um þetta virðist mér allir fjárhagsn.-menn vera sammála, enda kom það fram í ræðu hv. þm. V.-Ísf., þar sem hann lýsti yfir þeim skilningi á orðunum „hlutast til um“, að þau veittu enga heimild til fjárframlaga úr ríkissjóði.

Í frv. eru talin verkefni nýbyggingarráðs, og fyrst svo er á annað borð, tel ég nauðsynlegt, að sú upptalning verði gerð nokkru fyllri og að ráðinu verði falin athugun á vissum atriðum varðandi atvinnulífið, sem ekki eru nefnd í frv., en eru svo nátengd þeim viðfangsefnum, sem þar er getið, að eigi er síður nauðsynlegt, að athugun á þeim fari fram og það jafnsnemma. Um þetta er 2. brtt. mín, og vil ég fara um hana nokkrum orðum.

Í 2. málsgr. 2. gr. frv. eru talin helztu verkefni ráðsins. Ég legg til í a.-lið brtt. minnar, að sú málsgr. verði orðuð um og gerð nokkru yfirgripsmeiri. T.d. verði ráðinu falið að athuga, á hvern hátt þeim nýjungum, sem það á að gera áætlanir um, verði komið í framkvæmd á heppilegastan hátt. Skv. frvgr. á ráðið að gera áætlanir um, „hvernig bezt verði fyrir komið innflutningi fáanlegra tækja og efnis á næstu árum“, og er það út af fyrir sig gagnlegt, en í sambandi við það legg ég til í 2. brtt. minni, a-lið, að ráðinu verði falið að athuga, hvort eða að hve miklu leyti sé hægt að fá framleiðslutæki gerð innanlands fyrir eigi hærra verð en greiða verður fyrir þau, séu þau fengin frá öðrum löndum. Í frvgr., eins og hún nú er orðuð, er aðeins gert ráð fyrir innflutningi slíkra tækja.

Í staflið b. í 2. brtt. minni legg ég til, að tveimur málsgr. verði bætt inn í 2. gr. frv. Hin fyrri er um það, að nýbyggingarráði skuli falið að athuga, hverjar aðrar ráðstafanir en að kaupa ný framleiðslutæki þurfi að gera til þess að atvinnuvegir okkar verði samkeppnisfærir og geti framleitt vörur, seljanlegar við hliðina á framleiðslu annarra þjóða, sem við þurfum að keppa við á mörkuðum, þegar viðskiptin færast í frjálsara horf, sem væntanlega verður áður en langt líður.

Hin síðari er um það að fela ráðinu athuganir á því, hvernig stóratvinnurekstri í landinu verði bezt fyrir komið, og sérstaklega, hvernig bezt verði stuðlað að því, að þeir, sem við hann vinna, hafi beinna hagsmuna að gæta um rekstrarniðurstöðuna. Með stóratvinnurekstri á ég við þau atvinnufyrirtæki, sem hafa það mikinn rekstur og þess eðlis, að þar er þörf margra verkamanna. Ég tel þýðingarmikið, að slíkum rekstri verði fundið svo heppilegt form sem kostur er á, til þess að árangurinn verði sem beztur. Er sérstaklega ástæða, til að athuga, á hvern hátt er hægt að stuðla að því, að áhugi allra, sem þar að starfa, og viðleitni þeirra beinist að sama marki, að ná sem beztri niðurstöðu af rekstri fyrirtækjanna. Í þessu sambandi legg ég einnig til í brtt. minni, að ráðinu verði falið að athuga möguleika til að koma á ákvæðisvinnu í sem flestum atvinnugreinum. Eins og vikið er að í nál. mínu, er það form á launagreiðslum til verkamanna mjög notað í Rússlandi, svo að þar er miklu algengara, að menn fái greidd laun eftir afköstum heldur en ákveðin daglaun eða tímakaup, — jafnvel dæmi þess, að ákvæðisvinna hefur þar verið tekin upp við skrifstofustörf.

Ég tel sjálfsagt, að athugað verði gaumgæfilega, hvort eigi muni hagkvæmt og framkvæmanlegt að taka þetta upp í atvinnurekstri hér á landi.

Ég vænti þess, að hv. þd. geti fallizt á þessa brtt., þótt hv. meðnefndarmenn mínir í fjhn. færðust undan því að gera nokkrar breyt. á frv. Það liggur í augum uppi, að þótt nauðsynlegt sé að athuga, hvernig bezt verði bætt úr þörf þjóðarinnar fyrir ný framleiðslutæki, þá er ekki, síður þarflegt að reyna að gera sér ljóst um leið, hvernig atvinnurekstrinum á að vera fyrir komið til þess að sem beztur árangur náist og hin nýju tæki verði arðberandi fyrir þjóðina. Ég tel, að fyrirmæli um athugun á þessu megi alls ekki vanta í frv., fyrst þar eru á annað borð talin verkefni ráðsins. Verði nýbyggingarráði falin gaumgæfileg athugun á þessu, er það bending um, að Alþ. hafi fullan skilning á því, að atvinnuvegurinn þurfi að vera rekinn á heilbrigðum grundvelli, svo að þeir beri sig, og að þingið vilji vinna að því, að svo verði. Þetta gæti orðið hvöt fyrir menn til þess að leggja fram fé til framfara í atvinnulífinu. Verði hins vegar þessi brtt. mín felld og frv. afgr. eins og það nú er, án þess að þar sé með einu orði að því vikið, að athugaðar verði, hverjar aðrar ráðstafanir en að kaupa ný tæki þurfi að gera til þess, að aðalatvinnuvegir okkar verði reknir á heilbrigðum grundvelli, þá má draga þá ályktun af þeirri afgreiðslu, að meiri hl. Alþ. telji þetta atriði svo þýðingarlítið, að ekki sé ómaksins vert að taka það til athugunar. Sú yfirlýsing frá þinginu, sem felst í slíkri afgreiðslu málsins, gæti vel orðið til þess að minnka líkurnar fyrir því, að menn vilji leggja fram fé og vinnu til þessarar uppbyggingar atvinnuveganna, sem þjóðin hefur þörf fyrir.

Það ætti líka öllum að vera ljóst, að einmitt þetta, athugun á möguleikum til að gera framleiðslutækin arðberandi, er svo nátengt hinu, útvegun tækjanna, að þetta tvennt verður ekki aðskilið, ef vel á að vera. Ef nýbyggingarráð vill sinna verkefnum sínum af alvöru og láta þau verða að sem mestu gagni fyrir þjóðina, hlýtur það einnig að athuga, hvaða leið er bezt til að nota tækin, svo að gagn verði að þeim. Fram hjá þessu verður ekki horft að skaðlausu, því að takmarkið, sem á að stefna að, er aukin framleiðslustarfsemi á heilbrigðum grundvelli.

Síðasta brtt. mín er við síðari hluta 3. gr. frv. og snertir þær mþn., sem nú eru starfandi. Í frv. er ákvæði um, að fela megi nýbyggingarráði starf þeirra mþn., sem nú eru starfandi í skipulagsmálum atvinnurekstrar eftir stríð, sjávarútvegsmálum og í raforkumálum, ef ríkisstjórnin álítur það hentugra, svo að starfið vinnist fljótar og betur, og skulu þá n. þessar lagðar niður, jafnóðum og nýbyggingarráð tekur við störfum þeirra. Ég tel heppilegra, að þessum n. verði gefinn kostur á að ljúka störfum og skila áliti. Virðist mér, að þá megi vænta meira gagns af starfi þeirra en ef þær eru látnar hætta jafnvel við hálfunnið verk og láta það í hendur ókunnugra manna. Hins vegar tel ég sjálfsagt, að nýbyggingarráði sé gefinn kostur á að kynna sér allt, sem n. þessar hafa unnið að undanförnu. Ég legg því til, að frv. verði samþ. með þeim breyt., sem felast í till. á þskj. 524.