02.03.1945
Efri deild: 140. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1966 í B-deild Alþingistíðinda. (5205)

254. mál, fasteignamat

Bjarni Benediktsson:

Ég tel það í raun og veru rangindi, að frv. skuli vera þannig breytt án þess að leita nokkurs samkomulags milli deildanna, og falli frv., eins og það er nú úr garði gert, er það á þeirra ábyrgð, sem þannig fóru að breytingunum. Nú virðist tilgangur frv. aðallega sá að velta kostnaði yfir á sveitarsjóðina. Segi ég því já.