26.02.1945
Neðri deild: 138. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1967 í B-deild Alþingistíðinda. (5211)
292. mál, stýrimannaskólinn í Reykjavík
Sigurður Kristjánsson:
Herra forseti. — Þegar þetta mál var til 1. umr., fór það umræðulaust til 2. umr., og ég ætla, að ekki sé ástæða til þess að fara mörgum orðum um þetta.
Frv. þetta er afleiðing af breytingum þeim, sem gerðar hafa verið á l. um atvinnu við siglingar á íslenzkum skipum. En þegar frv. hafði farið til 2. umr., kom fram athugasemd við störf okkar í sjútvn. út af bráðabirgðaákvæðum 11. gr., en þar er gert ráð fyrir, að námskeið skuli halda, til undirbúnings undir nám í fiskimannadeild stýrimannaskólans í Reykjavík. Nú hefur orðið að samkomulagi að taka b-lið bráðabirgðaákvæðanna upp í frv. sjálft, þannig að í stað þess, að heimilt sé að hafa námskeiðin, skuli það fyrirskipað, ef næg þátttaka fæst.
En höfuðbreytingin er þó sú, að próf frá þessum námskeiðum skuli veita réttindi til II. bekkjar stýrimannaskólans. Og má telja, að samkomulag sé um þetta við skólastjóra stýrimannaskólans og aðra þá, sem láta sig þetta skipta að einhverju leyti, enda er þetta raunverulega ekki stórvægileg breyting. Ég ætla, að ekki sé þörf á að ræða þetta frekar, en leyfi mér að leggja fram þessar skriflegu brtt. frá sjútvn.: [Sjá þskj. 1233.]