15.12.1944
Sameinað þing: 76. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 459 í D-deild Alþingistíðinda. (5249)

188. mál, brú á Jökulsá á Fjöllum

Páll Zóphóníasson:

Ég vil leyfa mér að þakka n. fyrir, að hún leggur til, að þessi till. verði samþ. Þær breyt., sem hún vill gera, eru smávægilegar og sjálfsagðar, og hef ég ekkert við þær að athuga. Ég vil svo mega vænta þess fastlega, að hæstv. stj. geri sitt ýtrasta til að tryggja það, að á þessari brúarsmíði verði byrjað þegar á næsta ári. Það er svo mikið nauðsynjamál af þeim ástæðum, sem hv. frsm. nefndi, og ýmsum öðrum, að þegar fyrir liggur, að fé er nægjanlegt fyrir hendi til að byggja þessa brú, þá er það óforsvaranlegt með öllu að láta dragast að hefja framkvæmd á verkinu.

Þessi orð vildi ég láta fylgja till.