15.12.1944
Sameinað þing: 76. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 460 í D-deild Alþingistíðinda. (5252)

188. mál, brú á Jökulsá á Fjöllum

Jörundur Brynjólfsson:

Já, það má vel vera, að víðar séu erfiðleikar. En ekki hélt ég, að öðrum liði betur, þó að þeir vissu deili á því, að annars staðar liði einhverjum illa. Og nær mundi vera að gera sitt til að greiða fyrir þessu fólki öllu. Vil ég vera með í því verki, og hv. 2. þm. N.-M. er manna líklegastur til að ljá þar stuðning sinn, og þá erum við sammála.