16.12.1944
Sameinað þing: 77. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 463 í D-deild Alþingistíðinda. (5265)
158. mál, byggingarmál
Bjarni Benediktsson:
Ég leyfi mér að þakka hv. fjvn. fyrir góðar undirtektir undir till. mína og þá sérstaklega hv. meiri hl. n., sem leggur til, að till. mín verði samþ. óbreytt. En þrátt fyrir það, að hv. minni hl. n. leggi til, að till. mín verði nokkuð breytt, þá álít ég nú engu að síður, að minni hl. hafi tekið till. mjög vinsamlega, og það getur ákaflega vel komið til álita, hvort ekki sé hægt að fallast á brtt. hans. Ég skal játa, að þegar ég flutti mína till., vakti sérstaklega fyrir mér, að það yrði tekið til endurskoðunar, með hverjum hætti hið opinbera styrkti fjárhagslega byggingar í kaupstöðum. Ég leit þess vegna þannig á, að nóg væri að taka kaupstaðina eina út af fyrir sig, vegna þess að kaupstaðirnir eru núna miklu verr settir í l., sem þetta varða, heldur en sveitirnar. Það má segja, að um þessa tvo aðila gildi tvær gerólíkar réttarreglur, þar sem sveitirnar sitja í fyrirrúmi, en kaupstaðirnir njóta tiltölulega lítilla hlunninda og hlunnindin miðuð við núverandi verðlag tiltölulega lítils virði. Ég ætla ekki á nokkurn hátt að beita mér fyrir því, að dregið verði úr þeim miklu styrkjum og hlunnindum, sem veitt eru með ýmsu móti til sveita. Mér dettur það ekki í hug. Það mesta, sem ég gat látið mér til hugar koma, var, að kaupstaðirnir verði að nokkru leyti gerðir jafnréttháir sveitum, og taldi þess vegna eðlilegt, að kaupstaðirnir væru teknir þarna einir til, þar sem sennilega þætti ekki fært að auka þau hlunnindi, sem sveitunum að þessu leyti eru veitt með ríkisframlagi. Spurningin var eingöngu um það, hvort menn treystu sér einnig til að veita kaupstöðunum svipuð hlunnindi, í átt við það, sem sveitirnar hafa notið. Nú sé ég aftur á móti, að ýmsum þykir það eðlilegt, að athugun á þessu tvennu eigi sér stað samtímis, og frá mínu sjónarmiði hefur kaupstöðunum verið misgert í þessu tilfelli. Auðvitað er síður en svo, að ég geti haft á móti, að þetta sé allt tekið til athugunar í heild, því að ég er sannfærður um, að slík heildarathugun á byggingarmálum, sem ekki hefur átt sér stað áður, hlyti að leiða til leiðréttingar kaupstöðunum í hag. Ég tel því ekki óeðlilegt, fyrst ósk kom fram, að úr því verði, að þessi mál séu öll athuguð í heild. Spurning er, hvort menn vilja breyta upphaflegu till. varðandi þessi atriði eða hvort menn vilja samþ. brtt. minni hl. fjvn.
Annað höfuðatriðið er, að hæstv. ríkisstj. verði falin athugun og að gera till. um þessi mál í stað þess að mþn. verði skipuð til þess, þrátt fyrir, að þetta atriði skipti ekki svo miklu máli, vegna þess að einhverja menn verður að fá til þessa verks, eins og frsm. tók fram, hvort sem hæstv. ríkisstj. tilnefnir þá eða hv. Alþ. í formi mþn. En ástæðan til þess, að mér fannst eðlilegast, að mþn. yrði falið þetta, var sú, að ég áleit sérstaklega viðeigandi, að allir þingfl. kæmust að varðandi þessa endurskoðun, — að það yrði ekki eingöngu hæstv. ríkisstj., sem réði því, eftir hvaða sjónarmiðum þar væri starfað, heldur einnig minni hl. flokkarnir hér á Alþ., sem þarna kæmust að. Enn fremur var sú ástæða fyrir þessu, að þegar ég flutti till. upphaflega, var utanþingsstj., og þótti mér því sjálfsagt, að mþn. mundi hafa þetta verk með höndum. Nú er aftur á móti komin þingræðisstj., — ríkisstj., sem ég fyrir mitt leyti veiti stuðning og trúi til flestra góðra hluta, og vil ég lýsa ánægju minni yfir till. minni hl. um, að hæstv. ríkisstj. verði falið þetta mál, ef hún kýs þann kostinn heldur en að mþn. verði falið það. En ég verð einnig að lýsa ánægju minni yfir því, að einmitt sá hluti n., sem ekki styður núverandi ríkisstj., ber til hennar svo mikið traust, að hann leggur til, að hæstv. ríkisstj. annist þessa endurskoðun, en hinir að mþn. annist hana. Þetta er mjög ánægjulegt, og væri gott til þess að vita, ef hv. 1. þm. Rang. og aðrir hv. þm., sem með slíku offorsi hafa snúizt gegn hæstv. ríkisstj., væru nú búnir að sjá að sér og að við ættum nú von á því að verða „ein hjörð og einn hirðir“, — ekki sízt nú um jólaleytið, þegar við eigum að leggja allan ágreining til hliðar. — Ég held þess vegna, að það sé ekki hægt fyrir okkur, sem styðjum hæstv. ríkisstj., að taka upp baráttu gegn því, að ríkisstj. ein annist þetta verk, ef hæstv. ríkisstj. óskar eftir því og ef þeir menn, sem ekki styðja hæstv. ríkisstj., óska einnig eftir þessu. — Að öllu þessu athuguðu, sem sé, ef hæstv. ríkisstj. getur fallizt á brtt. minni hl. og vill ganga að því að taka að sér athugun á þessum málum, þá vil ég lýsa yfir því, að ég mæli eindregið með því, að brtt. minni hl. verði samþ., og skoða hana sem eins konar traustsyfirlýsingu á hæstv. ríkisstj.