13.12.1944
Sameinað þing: 75. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 465 í D-deild Alþingistíðinda. (5273)

206. mál, herzla síldarlýsis

Flm. (Sigurður Kristjánsson):

Ég geri ráð fyrir, að ekki sé tímabært á þessu stigi að ræða ýtarlega um málið, því að það fer að sjálfsögðu til fjvn. til athugunar. Tilefni þess, að till. er flutt, er ákvæði í 1. gr. laga um nýjar síldarverksmiðjur frá 1942. Þar segir, að ríkið láti reisa 6 nýjar síldarverksmiðjur á þeim stöðum, sem til eru nefndir, og lýsisherzlustöð, þegar það þykir tímabært og nægilega rannsakað. Árið 1939 hafði málið verið rannsakað nokkuð af Trausta Ólafssyni efnafræðingi. Þeim, sem vilja kynna sér það vel, get ég vísað til gagna, er hann birti og fyrst og fremst er að finna í skýrslum iðnaðardeildar Háskólans 1939 og í mjög fróðlegu erindi, sem Trausti birti í tímariti verkfræðingafélagsins, 5. hefti 1940. En allt, sem þar segir, er miðað við verðlag og hráefnismagn, sem var fyrir stríð, og þarf því að sjálfsögðu nýja rannsókn málsins.

Til lýsisherzlunnar er gert ráð fyrir að þurfi mikið rafmagn og mikið vatn. Rafmagn hefur skort, en á þessum vetri mun rafveita Siglufjarðar taka til starfa, svo að það skortir ekki lengur, og á Siglufirði eru langbezt skilyrðin til hráefnaöflunar fyrir stöðina.

Venja er, að fyrri umr. slíkra þáltill. sé frestað, meðan þær eru athugaðar í n. En ef forseta virðist gerlegt, óska ég, að málinu verði flýtt á þann veg að vísa því fyrst til síðari umr. og síðan til n.