09.01.1945
Sameinað þing: 82. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 480 í D-deild Alþingistíðinda. (5309)
118. mál, kaup á hlutabréfum Útvegsbanka Íslands h.f.
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Ég get tekið það fram og þóttist hafa gert það, að það er meiningin að kaupa af öllum. Ég gat þess líka, að skoðun mín væri breytt í þessu máli, þar sem búið er að gera ráðstafanir til að kaupa af erlendum hluthöfum, tel, að úr því ætti ekki að láta þar staðar numið, heldur kaupa þau bréf, sem fáanleg eru.