15.12.1944
Sameinað þing: 76. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í D-deild Alþingistíðinda. (5324)

215. mál, framkvæmdir á Rafnseyri

Flm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Hæstv. Alþ. hefur þegar tekið ákvörðun á grundvelli þessa nál. frá hátíðarn. og sú fjárveiting, sem samþ. hefur verið við 2. umr. fjárl., var samþ. með þeirri röksemd, sem felst í því nál. En það þýðir viðurkenning hæstv. Alþ. á því, að það vildi fyrir sitt leyti hjálpa til þess, að prestssetrið verði byggt upp og byggður heimavistarbarnaskóli, sem um leið væri notaður sem gistihús á sumrin. Þessi ákvörðun er þegar tekin, og þó að hv. 7. þm. Reykv. beri fram aðrar till., þá sé ég ekki, að það breyti neinu, því að fjárveitingin er byggð á þessum grundvelli, og þar með er þeirri n., sem hér yrði sköpuð, ákveðið starfssvið. Þingið afsalar sér ekki því, á hvern hátt Jóns Sigurðssonar verði minnzt á Rafnseyri. Þingið hefur tjáð sig samþ. því, að hans verði minnzt á fæðingarstað hans með því að vinna fyrir héraðið að menningarmálum í nútíð og framtíð.

Ég verð að segja, að mér þykir alveg óþarfi að tala um barnaskóla í óvirðingartón og Jóni Sigurðssyni sé sýnd lítilsvirðing með því, að á fæðingarstað hans verði komið upp barnaskóla. Slíkt held ég hefði verið fjarri honum sjálfum.

Hv. þm. veit betur en hann segir, þegar hann ræddi um fæðingar barna á þessum slóðum, því að þessi skóli er hugsaður fyrir allan Arnarfjörð, en þar munu skólaskyld börn vera um 40–60, sem búa í dreifbýli og þyrftu að komast í heimavistarskóla. Þessi áhugi, sem landlæknirinn hefur sýnilega með því að gefa þessar upplýsingar, er ákaflega mikils virði, en þær sýna, að þarna eru ágæt lífsskilyrði, og ég veit ekki, hvaða trygging er betri fyrir, að þarna verði byggð áfram, en mér skilst á hv. þm., að honum sé hugleikið að stöðva þessa þróun og láta byggðina í fæðingarstað Jóns Sigurðssonar deyja út samkvæmt landlæknis ráði. Ég get vel skilið, að menn geti verið ósammála um, hvað skuli gera á slíkum menningarstöðum sem þessum. En mér finnst þó, að þegar Alþingi telur einn mann hafa unnið svo mikið fyrir land og þjóð, að við eigum að kenna endurreisn lýðveldis okkar við hann, þá sé ekki úr vegi að veita smáfjárhæð til að halda við byggð og menningarlífi á fæðingarstað hans. Hér á Íslandi höfum við að vísu minnzt merkra manna á mismunandi hátt. Það vill svo einkennilega til, að hér í Reykjavík bjó fyrsti landnámsmaður Íslands, og ég veit ekki til, að hans hafi verið minnzt á neinn hátt annan en þann, að á húsvegg, þar sem talið er, að bær hans hafi staðið, var til skamms tíma skrifað: Hér fást ánamaðkar. En svo er annað. Rafnseyri er nú að verða í þjóðbraut, og það er svo aðkallandi, að ekki verður hjá því komizt að gera þar eitthvað til þess, að hægt sé að taka móti öllum þeim ferðamannastraum, sem þar liggur um. Ég vildi, að hv. þm. kæmi á þessar slóðir eftir 5–10 ár, og þá mundi hann sjá, að eitthvað hefði munað um þær ráðstafanir, sem hér er verið að gera, og þá mundi hann kjósa, að hann hefði sagt færra til að draga úr, að það megi vel fara.