15.01.1945
Sameinað þing: 83. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 490 í D-deild Alþingistíðinda. (5335)

215. mál, framkvæmdir á Rafnseyri

Gísli Jónsson:

Herra forseti. — Út af ummælum hv. 2. þm. Rang. um afgreiðslu þessa máls í n., vil ég gefa þær upplýsingar, að strax á fyrsta þingfundi eftir jólafríið óskaði hæstv. dómsmrh. eftir því, meira að segja skriflega, að ákveðin mál væru afgreidd þá þegar, og meðal þeirra var þetta mál. Ég boðaði því strax til fundar í all hn. til þess m. a. að ræða þar þessa till., og fékk hv. 2. þm. N.-M. það boð á sama hátt og aðrir nm. Ræddum við um það á fundinum, að 2. þm. Rang. mundi vera á móti þessari till. eins og hún lá fyrir. Minntist ég meira að segja á það, hvort ekki væri ástæða til að fresta afgreiðslunni, en n. kom sér þó saman um, að úr því að meiri hl. hennar væri sammála um að afgreiða málið þannig, væri ekki ástæða til að fresta því, þar eð þessir menn gætu gert sérálit á sínum tíma.

Hins vegar var mér með öllu ókunnugt um, hvenær staðgengill hv. 2. þm. Skagf. og hv. 2. þm. Rang. kæmu til bæjarins, og ég sé ekki, að hægt sé að ásaka n., þó að hún afgreiði mál með sameiginlegum meiri hl., eins og hún gerði. Svo að ég vísa frá með öllu sem form. n. þeim ásökunum, sem hér hafa komið fram um afgreiðslu málsins.

Ég vil benda hv. 7. þm. Reykv. á það, að ég mundi ekki telja sæmilegt af Alþ. að fara nú að setja sérstök ákvæði um þá fjárveitingu, sem nú er búið að veita, og enn fremur, að enda þótt till. þessi yrði samþ., hefur hæstv. ríkisstj. fulla heimild til að verja fénu eins og henni sýnist. Liggur fyrir því nýr hæstaréttardómur, að samþ. einnar þáltill. getur ekki raskað lagaákvæðum hér á Alþ. Stendur því nákvæmlega á sama, hvort till. verður samþ. eða ekki upp á það að gera, að þessi fjárveiting, sem nú er búið að veita, verður ekki tekin af staðnum. Af þeim ástæðum einnig sá n. enga ástæðu til að bíða eftir þeim mönnum, sem einhverju öðru höfðu að sinna en þingmálum.