24.01.1945
Sameinað þing: 87. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 500 í D-deild Alþingistíðinda. (5369)

222. mál, virkjun Andakílsár

Frsm. (Pétur Ottesen):

Herra forseti. — Eins og sést á nál., þá mælti fjmrh. með því, að þessi þál. yrði samþ., með breyt. þó, að upphæðin, sem í upphafi var sótt um ríkisábyrgð fyrir í heild, verði takmörkuð við 85% af heildarkostnaði. N. hefur fallizt á þetta, enda er svo háttað, að þessi breyt. hefur ekki áhrif á þá upphæð, sem sótt var um ábyrgð fyrir, sökum þess að félag það, sem tók að sér verkið, ætlaði ekki að sækja um lán til innanbæjarkerfisins. Af þessari ástæðu þarf ekki að breyta fjárhæð þeirri, sem um ræðir í till., þótt þessi takmörkun verði ákveðin. Innanbæjarkerfinu verður einungis bætt við.

Ég skal fara fáum orðum um sögu þessa máls. Á þinginu 1943 var samþ. þál. til ríkisstjórnarinnar um fyrirgreiðslu þessa verks. Stóð þar opið, hvaða aðilar skyldu hafa framkvæmd verksins á hendi. Þetta var einungis gert til þess að hefja mætti undirbúning. Nú varð enginn undirbúningur gerður af hálfu ríkisstjórnarinnar. Var því um tvennt að velja, annaðhvort að láta málið niður falla eða héraðsmenn hæfust sjálfir handa. Fyrst var leitað eftir um efniskaup í Ameríku, en þar fékkst ekki útflutningsleyfi. Þá var leitað til Svíþjóðar. Kom þá í ljós, að þar mátti fá vélar og annað efni með allt að því helmingi betri kjörum en í Ameríku. Nú var leitað til ríkisstjórnarinnar um að fá ríkisábyrgð fyrir láni til efniskaupa, sem nam 3 milljónum króna. Þessa ábyrgð veitti ríkisstjórnin. — Þetta vildi ég láta koma fram í sambandi við það orðalag, sem viðhaft er um þessa framkvæmd í till. Sem sagt, það var um það tvennt að ræða, að reyna að hefjast handa eða leggja árar í bát. Nú er málið komið svo áleiðis, að smíði véla verður lokið á þessu ári. Vatnsvélin verður tilbúin í næsta mánuði og rafmagnsvélin í júní. Annað efni verður tilbúið þegar leiðir opnast, en ekkert efni kemst vitanlega fyrr. Þar sem málum er svo komið, að á því einu stendur, að efnið fáist flutt, er áformað að hefja verkið á næsta vori, byggja vélahús o. fl., sem má ljúka, þótt vélarnar séu ekki komnar. Efni til þessara hluta fæst í löndum þeim, er við nú skiptum við, og er því þeirra hluta vegna hægt að byrja í vor.

Aðilar þeir, sem hér eiga hlut að máli, eru sýslufélög Mýra- og Borgarfjarðarsýslu og Akraneskaupstaður, og eiga þeir sinn þriðjung í fossunum hver. Það er getið um það í nál., að fjvn. hafi borizt bréf frá meiri hl. mþn. í raforkumálum, en nefndarmenn eru Jón Pálmason, Skúli Guðmundsson, Ingólfur Jónsson og Jörundur Brynjólfsson. Eru það hinir sömu, sem flytja brtt. á þskj. 837, og er hún sama efnis og bréf þetta. Þar er lagt til, að ríkisstjórnin taki allt þetta að sér og ríkið verði eigandi þessara mannvirkja.

Nefndin átti samræður við ráðh. og 1. þm. Árn., sem er form. mþn. í raforkumálum. Varð niðurstaðan sú, að ráðh. féllst á till., eftir að það ákvæði, sem fyrr er getið, hafði verið fellt inn í hana. — Í nál. er nokkuð farið inn á það, hversu megi samræma þetta mál heildarlausn raforkumálanna, en afgreiðslu þeirra verður ekki lokið á þessu þingi, en það er mál, sem skammt hlýtur að bíða, að teknar verði ákvarðanir um, eða ekki lengur en til næsta þings. Eitt atriði enn vildi ég minnast á þessu viðvíkjandi, og það er, hvaða ástæða er til að setja þetta mál í samband við heildarlausn raforkumálanna. Fjvn. leit svo á, að ekki væri á nokkurn hátt spillt fyrir eða tafinn framgangur þeirra mála í heild, þótt þetta verk yrði nú hafið. — Hv. þm. Barð. vék hér að því áðan, að með samþ. þessarar till. væri slegið föstu um stefnuna í þessum málum. Þetta er rangt athugað og undarlegt um svo duglegan mann, sem hv. þm. Barð. er, því að það má hann eiga, að hann skuli ekki hafa kynnt sér betur plögg þessa máls, því að þessi skoðun hlýtur að stafa af því, að hann hafi ekki lesið nál. Eftir þeim skilningi, sem hann hélt fram, ætti ekki að vera hægt að taka þessar vélar af þeim aðilum, sem nú hafa fest kaup á þeim, og nota þær í virkjanir, sem ríkið kæmi til með að standa fyrir og framkvæma. Það er regin misskilningur hjá hv. þm., að fjvn. hafi slegið föstu um þetta, og held ég, að ég verði að lesa upp dálítinn póst úr nál., með leyfi hæstv. forseta, ef vera kynni, að það væru einhverjir hv. þm., sem ekki hefðu kynnt sér það, sem í nál. stendur sérstaklega um þetta atriði. Tekur það alveg af skarið um afstöðu fjvn. og sannar, að n. ætlar sér ekki á neinn hátt að marka með þessari till. neina sérstaka stefnu í raforkumálum. Eins og stendur í nál., er eðlilegast, að framkvæmdum sé haldið áfram af þeim aðilum, sem staðið hafa að undirbúningi virkjunarinnar. Í framhaldi af því segir:

„Að því leyti, sem ný löggjöf kynni að marka nýtt viðhorf, að því er það snertir, að annar aðili hefði upp frá því á hendi framkvæmd þeirrar virkjunar, sem hér um ræðir, og síðar aukning hennar, þannig að orka sú, sem í Andakílsfossum felst, yrði hagnýtt að fullu, þá getur fjárveitinganefnd ekki séð, að með samþykkt þessarar till. sé lagður steinn í götu þeirra þörfu og nauðsynlegu framkvæmda, sem hér er byrjað á, — síður en svo“.

Til frekari stuðnings því, að þetta þurfi ekki að leggja stein í götu þess, að hægt sé að samræma þessar framkvæmdir þeirri heildarlöggjöf um þessi efni, sem ráðagerðir eru uppi um, er bent á það hér, að lega Andakílsfossa er þannig, að þessi virkjun fellur alveg inn í það heildarkerfi, sem talað hefur verið um að koma upp einmitt á þessu svæði. Mér finnst, að eiginlega ættu allir að geta verið fyllilega sammála um þetta. Mér þykir því harla einkennilegt, að ekki skuli allir geta orðið því samþykkir að lofa framkvæmd þessara mála að halda áfram á þeim grundvelli, sem lagður hefur verið, þar til heildarlöggjöf hefur verið sett um þetta efni. Hitt veit ég, að allir hv. þm. skilja mjög vel, að þar til heildarlöggjöf hefur verið sett um þetta, er þeim aðilum, sem undirbúið hafa þetta mál með brennandi áhuga, sem byggist á nauðsyn þessara framkvæmda, auk þess sem þá er lagður grundvöllur að frekari útfærslu raforkunnar á þessu svæði, mikið í mun að fá að halda áfram þessu verki og telja því að þessu leyti bezt borgið í sínum höndum. Þeir hafa mjög vandað allan undirbúning í sambandi við þetta mál og valið til þess þann verkfræðing, sem t. d. undirbjó Laxárvirkjunina fyrir norðan, og þær áætlanir, sem hann þar gerði, hafa staðizt mjög vel, svo að þær hafa að ýmsu leyti skorið sig úr mörgum öðrum áætlunum á þessu sviði. Það er því mjög eðlilegt, að þessir aðilar óski þess og telji mest öryggi í því, að þessum málum verði haldið áfram og byrjað á verkinu með þeirri faglegu aðstoð, sem þeir hafa tryggt sér, og fái að halda verkinu áfram, þar til búið er að setja löggjöf um þetta mál, sem e. t. v. felur í sér breytta afstöðu að þessu leyti, er þeir að sjálfsögðu beygja sig undir.

Ég var búinn að ganga inn á þessa hlið málsins áður en hv. 1. flm. þessarar till. hafði talað fyrir henni, og er það af því, að einn af hv. flm., hv. fyrri þm. Árn., var búinn að reifa þetta mál í fjvn. og setja fram þær ástæður, sem meiri hl. n. hafði fyrir því að bera fram þessa brtt., og jafnframt af því, að ég vildi benda á, að ekki væri á rökum reist það, sem hv. þm. Barð. sagði í umr. um næsta mál hér á undan, að með þessu væri af hálfu fjvn. mörkuð stefna eða tekin afstaða til þess stefnumunar, sem máske kann að koma fram í sambandi við endanlega afgreiðslu þessa máls. Og ég vil segja það, að ef því er haldið fram, að hér sé um stefnu fjvn. að ræða, þá er það eins stefna hæstv. ríkisstjórnar, því að n. var sammála hæstv. ríkisstjórn um afgreiðslu þessarar tillögu. En ég held, að eins og fjvn. hefur ekki markað neina stefnu, verði heldur ekki sagt um hæstv. ríkisstjórn, að hún sé að marka neina stefnu um þetta, þótt hún hafi lagt það til málanna um afgreiðslu þessarar till., sem um er getið í nál.

Skal ég svo ekki fara um þetta fleiri orðum.