24.01.1945
Sameinað þing: 87. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 510 í D-deild Alþingistíðinda. (5374)
222. mál, virkjun Andakílsár
Bjarni Ásgeirsson:
Herra forseti. — Mig langar til að segja nokkur orð um þetta mál, sérstaklega þá brtt., sem hér liggur fyrir, og í tilefni af því, sem fram hefur komið frá hv. þm. A.-Húnv.
Hv. þm. A.-Húnv. hóf mál sitt á því að ræða um heildarstefnuna í rafmagnsmálum, og virtist mér ræða hans frekar eiga heima við mál, sem hann boðaði, að bráðum mundi koma fram í þinginu, en liggur ekki fyrir enn þá. Ég vil segja eins og hv. þm. Borgf., frsm. fjvn., að sú stefna, sem hann ræddi um í sambandi við það mál, liggi ekki endanlega fyrir í sambandi við meðferð þessa máls, og skal ég koma að því síðar.
Hann talaði um, að ef haldið yrði áfram að virkja fyrir kaupstaðina og sveitirnar skildar eftir, þá væri sveitunum voði búinn og þær mundu bráðlega leggjast í auðn. Ég skal ganga inn á, að þetta sé svo, en ég sé ekki, að það hafi nokkur áhrif á þetta mál, þó að brtt. þessa hv. þm. sé samþ., vegna þess að með þeirri brtt. er ætlazt til, að gert sé nákvæmlega það sama og ætlazt er til samkvæmt till. sjálfri, það á að virkja Andakílsárfossa, og þar er gert ráð fyrir sömu virkjun og farið er fram á með aðaltill. og ætlazt til, að byrjað verði á að virkja fyrir kauptúnin Akranes og Borgarnes og þær sveitir, sem liggja þar í kring, svo að í því er engin stefnubreyting, þó að brtt. verði samþykkt.
Hv. þm. segir, að sú tilhögun, að ríkið eigi rafveiturnar og selji orkuna til allra, sé sú stefna, sem hann og n. berjist fyrir, og sú stefna, sem hann álíti, að bjargi öllu í þessu máli. Það má vel vera, að svo sé, en ég sé ekki annað en að sú stefna geti sigrað, hvort sem þessi virkjun er ákveðin samkv. till. fjvn. eða ekki, því að virkjunin á að vera sú sama eftir báðum till., en svo sker framtíðin úr, hvaða tilhögun verður höfð, þegar rafmagnið verður leitt víðar út um byggðir landsins. Og þó að ég sé ákveðið á móti brtt., þá neita ég því alveg, að ég sé þar með að marka fyrir mitt leyti þá stefnu, sem ég á sínum tíma kann að taka yfirleitt í þessum málum. En aðalástæðan fyrir því, að ég er á móti brtt., er sú, að ég býst við, að ef hún er samþ., þá verði það eingöngu til þess að torvelda framkvæmd þessarar virkjunar og tefja hana um ófyrirsjáanlegan tíma.
Það liggur fyrir frá fjvn., að hæstv. stj. hafi lagt á móti þeirri meðferð, sem farið er fram á í brtt., og lagt með því, að aðaltill. eða sú tilhögun, sem fjvn. fylgir, verði samþ. Og þar sem það er vitað, að sá er vilji hæstv. stj., þá höfum við flm. enga vissu fyrir, að hæstv. stj. muni samþ. þá heimild, sem henni yrði gefin með brtt. um framkvæmd málsins, a. m. k. meðan ekki liggur fyrir yfirlýsing hæstv. stj. um, að hún samþ. þá heimild, þá getum við eins búizt við, að ef brtt. yrði samþ., þá yrði það til þess, að sú framkvæmd, sem fyrirhuguð er í þessu máli á næsta ári, stöðvaðist í bráð og jafnvel um óákveðinn tíma. Enn fremur er það rétt, sem kom fram hjá hv. þm. Barð., að það er ekki okkur vitanlegt, að hæstv. stj. hafi til umráða nokkurt fé til að verja í þessu skyni. Það er vitað, að nú er búið að ganga frá fjárl. og ráðstafa öllum tekjum, sem hæstv. stj. hefur yfir að ráða, og ég held öllum tekjuvonum, sem hæstv. stj. eða þingmeirihl. hefur komið sér saman um að afla stj. á þessu þingi. Það liggur því ekkert fyrir um það, að til sé fé til að framkvæma þetta á næsta ári eða vilji hjá hæstv. stj. til að framkvæma það, og þegar það liggur fyrir, getum við flm. eins búizt við, að samþ. brtt. verði eingöngu að fótakefli þessu máli, sem er langt á veg komið, eins og hv. þm. Borgf. hefur lýst rækilega og hv. þm. er kunnugt. Af þessum ástæðum treysti ég mér ekki til að vera með brtt., þó að ég vilji engu slá föstu um það, hvaða stefnu ég kynni að fylgja í raforkumálum, þegar þau liggja fyrir til úrslita hér á þingi.
Ég vil minna á, að upphaflega, þegar samþ. var þál. hér á þingi um þetta efni, þá var engu slegið föstu um, hverjir framkvæmdu verkið, en látið liggja milli hluta, hvort stj. framkvæmdi það eða hvort þeir aðilar, sem að málinu stæðu heima í héraði, framkvæmdu það. Við flm. gengum inn á þessa lausn málsins, tilbúnir til að beygja okkur undir hvora aðferðina sem væri, en þegar til kom, varð það þannig, að stj. óskaði ekki að nota þá heimild, sem hún hafði til að framkvæma verkið sjálf, heldur vildi hún láta aðilana sjálfa hafa það með höndum. Ég get því ekki séð, að þótt aðaltill. yrði samþ., þá sé hún nokkuð fremur en brtt. brot á þeirri stefnu, sem þessi hv. þm. vill, að upp sé tekin í rafmagnsmálum hér á landi, því að hún er ekkert nema áframhald af þeirri stefnu, sem hefur verið tekin á undanförnum þingum af þingi og stj. um framkvæmd þessa máls, meðan þetta bráðabirgðaástand ríkir í þessum málum og þingið er ekki búið að skapa sér fasta framtíðarstefnu. Og sé ég ekki ástæðu nú frekar en áður að taka þetta eina fyrirtæki út úr, áður en sýnt er, hvað þingið ætlar sér í hinum stærri málum, því að þótt nú væri samþ., að ríkið framkvæmdi þetta verk, þá er engin vissa fyrir því, að hv. þm. A.-Húnv. og þeir, sem svipað líta á þessi mál, gætu fengið framgengt öðrum atriðum stefnu sinnar í þessu máli eða öðrum, sem er miklu meira um vert í rafveitukerfinu en þessi litla virkjun.
Hv. þm. segir, að þessi virkjun sé fyrir kaupstaðina eina, en sveitirnar eftir skildar og að það væri ekki þægilegt fyrir sveitir Borgarfjarðarsýslu, þegar þær vildu hefjast handa um að afla sér rafmagns. Þessi fullyrðing hans er byggð á nokkrum misskilningi á þessu máli, vegna þess að eins og hann ætti að vita, þá eru það sýslurnar, Borgarfjarðarsýsla og Mýrasýsla, ásamt Akraneskaupstað, sem eiga að standa að þessari virkjun. Sýslurnar ráða algerlega þeirri stefnu, sem upp verður tekin í málinu innan héraðsins. Þess vegna eru það sýslurnar, sem geta ráðið frekari framkvæmdum og hverjar þær verða og hvenær hafizt er handa um auknar framkvæmdir til að leggja rafveitur um héraðið. Undirbúningur málsins í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu er því hér alveg sá sami og hann og félagar hans vilja koma á fyrir landið í heild. Sýslurnar, sveitirnar, hafa algerlega meirihlutaaðstöðu í málinu, svo að óðar en möguleikar eru fyrir hendi til að leggja rafveitur út um héraðið, þá hefur dreifbýlið aðstöðu til að ráða öllu um framkvæmd málsins. En það er ekki hægt að ráðast nú í stærri virkjun en svo, að hún nái til þéttbýlisins, til að fá þar með grundvöll undir frekari virkjun fyrir sveitirnar, þær tekjur, sem yrðu af virkjun og rafveitu til fjölmennra kaupstaða, geta orðið til að lyfta undir aukna virkjun og útþenslu rafmagnsnetsins um héraðið. Ég held, að þannig sé frá þessu máli gengið, að einmitt þeir, sem bera dreifbýlið fyrir brjósti, nauðsyn þess og þarfir, geti mjög vel unað við þessa tilhögun málsins, og ég vil undirstrika það, að ef þessari virkjun verður haldið áfram á þeim grundvelli, sem hv. fjvn. leggur til, þá gerist ekkert, sem staðið gæti í vegi fyrir, að þetta fyrirtæki geti fallið inn í frekari útþenslu, hvort sem er í héraðinu sjálfu eða heildarkerfi landsins alls.
Ég harma það, að þær till., sem hv. þm. A.-Húnv. boðaði, að lægju fyrir frá mþn., skyldu ekki koma fram fyrr á þinginu en nú. Við flm. höfum alltaf búizt við að verða að beygja okkur fyrir þeim ákvörðunum, sem þar yrðu teknar í þessu máli. En þegar þær liggja ekki fyrir, þá getum við ekki unað því, að það eigi að verða til að hefta framgang þessa máls, sem nú þegar er vel undirbúið og getur því orðið til að bæta úr þeirri miklu þörf, sem dreifbýlið hefur fyrir rafmagn, sem er svo mikil, að hv. þm. A.-Húnv. komst svo að orði, að það væri því líkast, að æði hefði gripið fólk um þessar framkvæmdir. Ég kann ekki vel við þá lýsingu á þeim áhuga, sem hefur komið fram á undanförnum árum hjá fjölda byggða, bæði þéttbýli og dreifbýli, að kalla það æði, því að það sýnir, hvað fólkið hefur lifandi áhuga í þessu máli, og meðan ekkert liggur fyrir frá mþn., þá vil ég ekki, að starf hennar verði til að draga úr og aftra framkvæmdum í þeim héruðum og hjá þeim mönnum, sem hafa sýnt mestan áhuga og dugnað við að koma þessum málum fram.
Ég vil því að lokum endurtaka þá yfirlýsingu mína, að ég tel, að atkv. mitt í þessu máli, sem verður gegn þeim brtt., sem hér liggja fyrir, segi ekkert um, hver afstaða mín verður til raforkumálanna í heild, þegar þau liggja fyrir, og að afstaða mín mótast eingöngu af því, að ég vil ekki tefla þessu máli í meiri tvísýnu en þörf er á, því að það eru samt nógir erfiðleikar, sem liggja fyrir slíkum málum hér á landi.
Við brtt. hv. þm. Barð. hef ég ekkert að athuga. Ég tel hana sjálfsagða, og ég get lýst yfir fyrir mitt leyti og ég býst við f. h. okkar beggja flm., að ekkert sé við það að athuga, að hún sé samþ. Hún er í samræmi við það, sem áður hefur verið gert til að ríkisvaldið geti fylgzt með í slíkum málum.