24.01.1945
Sameinað þing: 87. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 513 í D-deild Alþingistíðinda. (5375)

222. mál, virkjun Andakílsár

Skúli Guðmundsson:

Hv. þm. A.-Húnv., sem er 1. flm. að þeirri brtt. á þskj. 837, sem við fjórir flytjum, hefur gert grein fyrir, á hverju hún er byggð, og þarf ég ekki að bæta miklu þar við, en ég vil þó fara um málið nokkrum orðum, m. a. vegna þeirra andmæla, sem fram hafa komið gegn þessari brtt. okkar.

Ég held, að í sambandi við þetta mál sé gott fyrir okkur að rifja upp, hvernig framkvæmdum hefur verið háttað í þessum raforkumálum hér á landi á undanförnum árum. Það er svo, að það hafa verið reistar nokkrar stöðvar í landinu, smáar rafstöðvar, bæði fyrir einstök heimili og einnig fyrir nokkur kauptún, bæði vatnsaflsstöðvar á fáum stöðum og eins rafstöðvar, þar sem rafmagnið er framleitt með mótorvélum. Til skamms tíma mun það hafa verið þannig, að þessar smástöðvar hafa verið settar upp án nokkurrar aðstoðar frá ríkinu. Síðar færist það meira í það horf, að það, sem gert hefur verið í þessum efnum, hefur verið gert með stuðningi ríkisins, og á það a. m. k. við um allar hinar stærri framkvæmdir í þessum málum. Öllum hinum stærri rafstöðvum, sem reistar hafa verið, hefur verið komið þannig upp, að ríkið hefur veitt ábyrgð fyrir svo að segja öllu og í mörgum tilfellum öllu því fé, sem til framkvæmdanna hefur þurft. M. ö. o., þetta hefur verið þannig, að einstök bæjar- og sveitarfélög munu hafa staðið að þessum framkvæmdum og haft stjórn þeirra að öllu leyti í sínum höndum, en ríkið í raun og veru borið áhættuna.

Það er einnig ástæða til að minna á það í þessu sambandi, hvernig þessi fyrirtæki hafa verið rekin, þessar stærri rafveitur. Rafveitan við Sogið í Árnessýslu, sem Reykjavíkurbær kom upp með aðstoð ríkisins, er nú tíu ára gömul, og eftir því sem ég veit bezt, mun vera eitt sveitaheimili þar eystra í grennd við rafstöðina, sem hefur fengið rafmagn frá þeirri stöð. Aflið er tekið úr vatnsfalli í Árnessýslu, en engir héraðsbúar fá nein not þess nema eitt sveitaheimili. Öll veitan fer eingöngu til að mæta þörfum Reykjavíkur fyrir rafmagn. Fyrir nokkrum árum var einnig reist stór stöð við Laxárfossa í Þingeyjarsýslu. Akureyrarbær stóð að þeirri virkjun og fékk til þess sams konar aðstoð og Reykjavík hafði fengið, og líklega hefur enginn sveitabær fengið rafmagn frá þessari stöð, ekki einu sinni þeir, sem allra næst liggja, heldur er raforkan eingöngu notuð af Akureyringum. Þetta er gott og blessað frá sjónarmiði þeirra, sem telja, að rafmagnið eigi ekki að fara út um sveitirnar, því að það eru því miður til menn, jafnvel hér á þingi, sem hafa látið uppi þá skoðun, að það sé til ills eins að veita rafmagni út um sveitirnar, því að það tefji fyrir þeirri sjálfsögðu þróun, að þær leggist í auðn og fólkið flytji til annarra staða. En frá sjónarmiði þeirra, sem líta öðruvísi á þetta mál og telja það lífsskilyrði fyrir sveitirnar að fá rafmagn, er ómögulegt að telja þessa stefnu, sem fylgt hefur verið að undanförnu, æskilega. Ég hygg, að ef fram kæmu óskir til Reykjavíkur- og Akureyrarbæjar frá þeim, sem næst búa þessum orkuverum, að fá þaðan rafmagn, þá sé óhætt að gera ráð fyrir, að þær óskir yrðu ekki teknar til greina. Það er þessi stefna eða stefnuleysi, sem ríkt hefur að undanförnu, sem knúði mþn. til að leita markvissari stefnumiða og reyna að fá þau viðurkennd.

Við teljum, að ekki eigi að fara lengra á þeirri braut, að ríkið leggi fram allt fjármagnið til að koma upp stórum rafveitum fyrir einstök kauptún og kaupstaði, án þess að hafa nokkra íhlutun um stjórn fyrirtækjanna, en allir aðrir eigi að bíða í vonleysi um að fá bætt úr sínum þörfum. Mörg smærri kauptúnin verða þá út undan engu síður en sveitir, jafnvel þótt í námunda sé við stórar stöðvar. Við, sem flytjum brtt. á þskj. 837, teljum ekki mega fresta því að taka upp nýja stefnu, taka upp ríkisvirkjun, sem fullnægi ekki aðeins þörfum hinna stærri kauptúna, heldur alls almennings í nærliggjandi byggðum við orkuver og aðalleiðslur. Það er engin hagsýni að hefjast ekki þegar handa um framkvæmdir á þeirri braut, sem við verðum síðar að fara, og nauðsyn er að láta ekki fleiri mistök verða en orðin eru sakir stefnuleysisins.

Undirbúningur ríkisvirkjana er þegar nokkur orðinn, og löggjöf um þau efni verður að skapast innan skamms. Í nóv. s. l. hafði mþn. í raforkumálum lokið að semja frv. til raforkulaga. Þetta frv. lá alllangan tíma hjá ríkisstj. til athugunar. En þegar nm. fengu að vita, að ríkisstj. sæi sér ekki fært að taka það til flutnings, ákváðum við að flytja það, og verður því væntanlega útbýtt á morgun í þinginu.

Alþingi hefur ákveðið, að ríkið setji upp rafveitu til Keflavíkur, og er að henni unnið og ákveðið að hún fái rafmagn frá Sogsfossum. Brtt. okkar um nýja skipun Andakílsárvirkjunar er í samræmi við þá stefnu, sem þar var tekin, þótt raforkulagafrv. okkar sé ekki orðið að lögum. Hér er einnig á dagskrá Reykjanesrafveitan, sem gert er ráð fyrir í framhaldi Keflavíkurrafveitunnar til tveggja þorpa á Suðurnesjum, og ýmsir þm. hafa flutt viðaukatill. um, að ríkisstj. fái heimild til að kaupa efni í fleiri veitur, bæði frá Sogsvirkjun og Laxárvirkjun. Brtt. er í samræmi við þessar ráðagerðir um ríkisframkvæmdir á þessu sviði.

Ég á bágt með að skilja, hvers vegna hv. þm. Borgf. og hv. þm. Mýr. geta ekki fallizt á brtt. okkar. Báðir vilja þeir, að rafmagnið verði leitt út um sveitirnar. Þeir hafa fyrir augum þá reynslu, sem ég gat um, að byggðunum verður ekki gagn að rafveitunum með því lagi, sem verið hefur. Bent hefur verið á, að framkvæmd þessarar virkjunar er alveg jafntrygg, þótt brtt. verði samþ., því að engin ástæða er til annars en ætla, að ríkisstj. færi þar að vilja Alþ. Að vísu er brtt. orðuð sem heimild. En ef það þætti betra, mundum við flm. fúsir að breyta því orðalagi og segja: Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta byggja o. s. frv. En hin till. er líka í heimildarformi, svo að okkur þótti rétt að velja þá leið.

Hv. þm. Barð. lýsti sig eindregið andvígan till. okkar. Ég fæ ekki skilið það, ef hann hefur nokkurn áhuga á, að fleiri en íbúar kaupstaða og kauptúna fái rafmagn. Hann segir, að ef ríkið eigi að gera þetta, þá verði sveitirnar að bíða, eins og þær hafi orðið að bíða eftir símanum. Þó að framkvæmdir í símalagningum hafi ekki orðið eins hraðar og æskilegt hefði verið, hefur nú mikið á unnizt. Þar er raunar og sá munur, að menn hafa mikil not símans, þótt bæjarleiðir þurfi að fara að ná til hans, en rafmagns hafa menn ekki not, nema þeir fái það heim til sín. Eftir að rafveitur væru komnar í héruðin, yrði reynt að hraða lagningum aukalína eftir megni. Hv. þm. Barð. finnur það að till. okkar, að ekkert sé þar um fjáröflun ríkisins til verksins. Um þetta talaði hv. þm. Mýr. einnig. Það þarf vitanlega að sjá ríkissjóði fyrir fé til þessa, og auðvitað er leikur einn að afla fjárins með lántökum á líkan hátt og flm. þáltill. gera ráð fyrir, og er ekkert erfiðara fyrir ríkið samkv. okkar till., því að ríkið tekur ábyrgðina hvort sem er. Við sáum ekki ástæðu til að flytja till. um fjáröflun, fyrr en sæist um afdrif brtt.

Ég sé ekki, að það hafi við nein rök að styðjast, sem hv. þm. Mýr. heldur fram, að samþ. brtt. okkar mundi torvelda framkvæmd málsins. Það er hægt að herða á ríkisstj. að gera þetta. Hv. þm. Mýr. segir, að þeirra till. sé beint framhald af fyrri aðgerðum í málinu. En samkv. fyrri heimild gat ríkisstj. gert hvort sem hún kaus heldur, lagt fram fé til að kosta rafveitu eða ábyrgzt féð, sem til þurfti. Hún tók síðari kostinn, sem ég tel lakari. Brtt. okkar getur eins vel talizt beint framhald af fyrri samþ. Alþ. í málinu. Það var ómaklegt í okkar garð, sem fram kom hjá hv. þm. Mýr., að við værum að reyna að tefja fyrir málinu og till. okkar væri dragbítur, ef samþ. yrði. Það hefur ekki við neitt að styðjast.