26.01.1945
Sameinað þing: 88. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 520 í D-deild Alþingistíðinda. (5378)

222. mál, virkjun Andakílsár

Sigurður Thoroddsen:

Með því að mér hefur óbeint verið blandað inn í þessar umr. sem nm. í raforkumálan. og því hefur verið haldið fram oftar en einu sinni, að ég væri ósammála meiri hl. n. um heildarskipun í raforkumálunum, vil ég taka það fram, að þetta er fjarstæða, með því að þeim mönnum, sem þetta tala, er ekki kunnugt um afstöðu mína í þessu máli. En í það eina skipti, sem n. lét frá sér fara eins konar stefnuyfirlýsingu í sambandi við umr. um Reykjanesrafveituna, þá bar ekki mikið á milli mín og annarra nm. Ég skal hins vegar taka það fram, og vil geta þess, að það er skoðun mín, að í rafmagnsmálunum hljóti að verða miklar framkvæmdir í framtíðinni, og það er skoðun mín, að heppileg úrlausn þeirra mála fáist ekki nema heildarskipun verði á þeim málum höfð. Ég veit, að þessi verkefni verða það stórfelld, að þau munu taka langt út yfir sérhagsmuni einstakra héraða, svo að mér er ljóst, að hér er þörf á, að nýr aðili komi til. Þess vegna er ég samþykkur því, að ríkið annist orkuvinnsluna og orkuflutninginn. Hvað þetta snertir, er því enginn ágreiningur milli mín og nefndarmeirihlutans. Ágreiningurinn er á öðru sviði, en um það verður tækifæri til að ræða síðar.

Ég skal svo taka það fram um það mál, sem hér er til umr., ábyrgðarheimild fyrir ríkisstj. varðandi Andakílsárvirkjunina, að ég mun greiða atkv. með því máli, því að ég er þess fullviss, að Andakílsárvirkjunin getur fallið inn í heildarskipun raforkumálanna, og í því trausti, þar sem hér er um heimild að ræða, að ríkisstj. geri það eitt í þessu máli, sem þjóðinni í heild er fyrir beztu, mun ég greiða þessu máli atkv.