26.01.1945
Sameinað þing: 88. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 529 í D-deild Alþingistíðinda. (5382)
222. mál, virkjun Andakílsár
Jón Pálmason:
Herra forseti. — Hv. þm. V.-Húnv. hefur nú að nokkru leyti rakið þær mótsagnir, sem fram komu í ræðu hv. þm. Borgf. hér áðan. Mér þykir þó ástæða til að bæta þar ofurlitlu við og minnast á nokkur atriði, sem fram komu í ræðu hans.
Hann byrjaði á því að tala um, að mótsagnir væru í afstöðu okkar í mþn. til þessa máls, þar sem við annars vegar lýstum yfir áhuga okkar á þessu raforkumáli og nauðsyn þess að koma raforku út um sveitirnar, en hins vegar fylgdum við ekki þeim till., sem hér liggja fyrir. Í þessu er engin mótsögn. Till. okkar miðar þvert á móti að því að tryggja það, að hægt sé að koma heildarskipun á þessi mál með tilliti til hagsmuna allrar þjóðarinnar, eins og hv. þm. V.-Húnv. hefur nú lýst.
Þá endurtók þessi hv. þm. það, að þessi till. kæmi ekki að neinu leyti í bága við það skipulag, sem áformað er með brtt. á þskj. 837. Er búið að svara þessu að nokkru, og þarf ekki að endurtaka þær röksemdir. Það er augljóst mál öllum, að fáar virkjanir fyrir kauptúnin, sem ekki fylgja jafnframt skyldur til að láta þær ná til hinna strjálli byggða, skapa verri aðstöðu til að koma fram heildarlöggjöf, sem tryggir, að sveitirnar fái raforku í náinni framtíð. Það er því fjarri lagi, að um nokkrar mótsagnir sé að ræða af okkar hálfu, eins og hv. þm. vill láta í veðri vaka.
Hv. þm. sagði, að mþn. hefði setið á rökstólum að þessum málum í 2½ ár. Þetta er ofmælt, því að það eru ekki nema liðug tvö ár. Ég efast um, að það sé á nokkurn hátt áfellisvert, en eins og hv. síðasti ræðumaður vitnaði í, kemur fram mikil mótsögn hjá honum, þegar hann jafnframt átelur okkur fyrir að leggja þetta frv. fram nú. Í því sambandi skal ég fara lítillega út í það, sem hv. þm. Borgf. talaði um afstöðu mína til hæstv. ríkisstjórnar, að komið hefðu fram hjá mér mótsagnir, sem bentu til, að ég hefði breytt um afstöðu til hennar og viðurkenndi það með því að gerast meðflm. að þessari brtt. Ég hélt nú satt að segja, að það væri ekkert nýtt að leggja inn frv., sem hæstv. ríkisstj. hefur ekki tekið afstöðu til, eða þó að breyta þurfi frv., sem lögð eru fyrir Alþ., og það ætti þessi hv. þm. að þekkja bezt. Annars mætti það vera okkur stuðningsmönnum hæstv. ríkisstj. ánægjuefni, ef þessum hv. þm. hefur eitthvað snúizt hugur frá því að hann skrifaði bréfin, sem getið hefur verið um sums staðar í landinu. — Skal ég svo ekki lengur ræða þetta atriði, með því að tækifæri mun gefast til þess síðar, þegar frv. okkar um raforkumál verður til meðferðar.
Þá vildi hv. þm. Borgf. mjög átelja það, sem ég sagði hér í ræðu minni áðan í sambandi við þetta mál, að mjög væri óheppilegt að fá þetta í hendur einstökum fyrirtækjum eða kaupstöðum nú, án þess að tryggja um leið, að ríkisvaldið hafi þar tök á. Kvaðst hv. þm. í því sambandi telja það mjög mikla framför, ef brtt. hv. þm. Barð. yrði samþ., þó að okkar till. yrði felld. En um þetta er það að segja, að í Sogsvirkjunarlögunum er heimild til að taka þessar virkjanir, ef samþ. er fyrir því á Alþ. Hv. þm. Borgf. og aðrir eru að átelja okkur fyrir það, að við höfum ekki hug til þess að leggja þetta til. En við höfum ekki gert það, af því að við töldum meiri líkur til þess, að hægt væri að koma þessum l. í gegn með sæmilegu samkomulagi.
Ég hef ekki mikla trú á því, sem hv. þm. Borgf. lýsti yfir, að hann vildi laga það fyrirkomulag, sem á þessu er, með því að skattleggja þær rafveitur, sem nú eru fyrir, og borga með því kostnað við rafveitur úti um sveitir landsins. Ég held, að það sé engin fullnægjandi lausn á þessu máli. Hins vegar er það svo, að samkvæmt okkar frv. er gert ráð fyrir því, að að svo miklu leyti sem þarf að auka virkjunarframkvæmdir fyrir stærri bæi, sem brátt þarf að gera, þá geri það rafveitur ríkisins.
Þá er það, sem hv. þm. Borgf. var að endurtaka af því, sem hv. meðflm. hans sagði hér í gær, að þátttakan um þessa virkjun í héraðinu væri að þriðjungi frá hverjum aðila, Akranesi, Borgarnesi og Mýrasýslu. Og hann hélt því fram, að það væru sveitamennirnir, sem væru þar í meiri hluta og gætu ráðið yfir því, hvað gert væri. En þetta kemur í mótsetningu við manntalsskýrslurnar. Ég þori að fullyrða, að það er fleira fólk á Akranesi og í Borgarnesi samtals en í sveitum í þessum héruðum.
Þá er það eitt af því, sem hv. þm. Borgf. taldi vera mjög mikla mótsögn af minni hálfu, að ég hefði verið að tala um það í gær, að þeir væru gæfunnar börn, sem að þessari virkjun standa, ef hún kæmist á, en ég vildi þó koma í veg fyrir, að þetta félag starfrækti fyrirtækið áfram. (PO: Ég sagði þetta í sambandi við andstöðu hv. þm. A.-Húnv. á móti öðrum till.). Ég tel þessa menn því aðeins gæfunnar börn í þessu héraði á þessu sviði, að samþ. verði okkar till. um að tryggja, að ekki aðeins kaupstaðurinn og kauptúnið á þessu svæði, heldur einnig sveitirnar mættu njóta þessara framkvæmda. Og ég tel það mikils virði. Og það má virðast undarlegt, að þessir menn taki því ekki fegins hendi, að þetta verði fyrstu héruðin, sem tryggð verði á þessu sviði með ríkisvirkjun, ef okkar till. verða samþ. — Og t. d. rafveitan á Sauðárkróki kemur eins og nú er ekkert inn í það plan, sem við viljum leggja með till. okkar. Hún miðar að því að skera sveitirnar frá Sauðárkróki og gera sveitunum í hinni blómlegu byggð Skagafjarðar örðugra fyrir en ef þær framkvæmdir væru gerðar sameiginlega í sveitum og kaupstöðum og kauptúnum. Og svona er þetta hvarvetna annars staðar. Og þó að þessar rafvirkjanir, sem hinar mörgu till. eru um hér á þingi, séu sniðnar með heildarhag fyrir augum, þá tel ég það miður farið, að þær séu ákveðnar áður en heildarlöggjöf er sett um þessi mál.
Hv. þm. Borgf. var allharðorður út af því, að ég og við í raforkumálanefnd hefðum ekkert í því gert að tryggja, að Andakílsfossar væru virkjaðir. Það var ekki í okkar verkahring að gera till. um það, hvort þetta eða hitt vatnsfall yrði virkjað fyrr eða seinna. Það er á verksviði þeirra manna, sem ætlazt er til, að stjórni þessum framkvæmdum. Og ég býst við, að þó að þetta félag, sem hér er stofnað, hefði ekkert gert, þá hefði þessi virkjun verið mjög framarlega á línunni um framkvæmdir eftir áætlunum raforkumálanefndar. Og reynslan sker úr um það, hvort það verður til happa, að vélarnar eru keyptar, sem búið er að kaupa, og að stofnað er til framkvæmdanna nú þegar. Ég spái hvorki illu né góðu um það. En þessir menn eru því aðeins gæfunnar börn á þessu sviði, ef þeir ganga inn á það að fá að vera fyrstir í þeirri ríkisvirkjun, sem fyrirhuguð er eftir okkar frv.
Þá var hv. þm. Borgf. að tala um það, að ég og hv. þm. V.-Húnv. værum dragbítar í þessu máli, en alls ekki neinir framfaramenn, að mér skildist. En þar kemur bara fram sá stóri ágreiningur, hvort heppilegra sé að fara inn á þessar leiðir, sem hv. þm. Borgf. og aðrir, sem eru á sömu línu, vilja, að taka fyrir til framkvæmda smávirkjanir, heldur en að hafa stórar virkjanir og samband á milli, eins og okkar stefna er. Það er nokkurn veginn orðinn skýrt afmarkaður sá ágreiningur, og því er ástæðulaust að vera með brigzl um, að hér sé um dragbítshátt að ræða. Það er alveg þvert á móti.
Þá skal ég víkja örfáum orðum að því, sem hv. þm. Barð. minntist á, og kemur það þá frekar til umr. í sambandi við okkar frv., þegar það liggur fyrir til umr. Hv. þm. segir, eins og rétt er, að ríkinu séu veitt réttindi samkv. frv., en ekki að sama skapi skyldur um það, hve fljótt það eigi að ráðast í raforkuframkvæmdir. Þetta er rétt. Hve fljótt framkvæmdir mundu verða, veltur á því að sjálfsögðu, hvernig Alþ. er skipað á hverjum tíma. Það er ekki hægt fram hjá því að komast, og um leið hinu, hvernig fjárhagur þjóðarinnar er á hverjum tíma. En það ákvæði, að ætlazt er til þess, að þeir sitji fyrir um framkvæmdir á þessu sviði, sem mest geta lagt fram, á að vera til þess að tryggja, að áhugi manna á þessu sviði fái að njóta sín, þó að um ríkisvirkjanir sé að ræða. Og þó að 4 til 8 héruð gætu samtímis lagt fram jafnmikið fé, þyrfti það ekki að rekast á, ef unnt væri að útvega efni, sem til þyrfti. En svo kom hv. þm. Barð. inn á það sama og hv. þm. Borgf. áðan, að það megi ekki hefta neitt einstaklingsfyrirtæki á þessu sviði, heldur verði að lofa öllum, sem vilja virkja, að gera það og veita þeim ríkisábyrgð fyrir stofnkostnaði, og það vegna þess, að það yrði til stuðnings fyrir framtíðina í þessum málum. En hér er ágreiningur. Við í raforkumálanefnd teljum, að með því að koma þessum málum í heildarkerfi, þá sé það mest trygging fyrir landið allt, og þá séu mestar líkur til þess, að þessar framkvæmdir verði öllu landinu að fullu gagni. Einstaklingsfyrirtækin geta náttúrlega gert mikið á þessu sviði, þar sem bezt er aðstaðan, ef þeim er leyft að tryggja sig og sína aðstöðu án þess að hugsa um hina, sem verri skilyrði hafa, og ef þessum fyrirtækjum er veitt ríkisábyrgð fyrir lánum, sem til þarf. Í þessum efnum höfum við dæmin fyrir okkur, og þau dæmi eru þannig, að mér virðist þau benda fullkomlega í þá átt, sem stefnan hefur verið á mörgum sviðum, að hinir stærri bæir og þéttari byggð sitji fyrir um að fá lífsþægindin, en ekki hirt um það, að strjálbýlið og sveitirnar fari smátt og smátt af þeim sökum í auðn, að þar fær fólk ekki að njóta þeirra þæginda, sem raforkan veitir. Þar sem nú er fyrir hendi þessi stóri ágreiningur á þessu sviði, gerist þess ekki frekari þörf að svo komnu að ræða þessa hlið málsins.