26.01.1945
Sameinað þing: 88. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 535 í D-deild Alþingistíðinda. (5386)
222. mál, virkjun Andakílsár
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. — Ræða hv. þm. Borgf. gefur mér tilefni til þess að gera nokkrar aths., og einnig sú brtt., sem hann hefur hér borið fram skrifl., sem er frá honum og hv. þm. Mýr. — Hv. þm. Borgf. telur sig víst hafa svarað þeim spurningum, sem ég beindi til hans og hins flm. að aðaltill. En mér finnst svörin ekki svo glögg sem æskilegt hefði verið né taka af tvímæli um það, sem ég var í vafa um.
Viðvíkjandi spurningu minni um það, hvernig þessir samningar væru á milli þessara aðila, sem standa að Andakílsárvirkjuninni, um framkvæmd og rekstur fyrirtækisins, þegar það er komið upp, endurtók hann aðeins það, sem áður hefur verið tekið fram, að Akranes eigi þriðjunginn og Mýra- og Borgarfjarðarsýsla hina ? hluta, og þess vegna hefðu sýslurnar þarna meirihlutavald um stjórn fyrirtækisins. Eitthvað gat hv. þm. Borgf. um það, að það væri til þess ætlazt, að þeir, sem fengju rafmagn frá þessari virkjun, Akurnesingar, Borgnesingar og nokkrir menn aðrir, ættu að greiða allir jafnmikið fyrir raforkuna. Hins vegar gekk sá hv. þm. alveg fram hjá því, sem var aðalatriðið í minni fyrirspurn, hvernig samningar væru um frekari stækkun þessa mannvirkis eða leiðslur frá raforkuveitunni út yfir stærra svæði, hvort fyrirhugað væri, að allir kostuðu það að jafnmiklu leyti, sem að þessari virkjun standa og reka hana, þegar til kemur, og hvort allir fengju þá rafmagnið með sama verði, sem notuðu rafmagn frá raforkuveitunni, og hvernig þessir samningar væru yfirleitt þessu viðkomandi, ef nauðsynlegt væri að hækka rafmagnsverðið, ef orkan væri leidd um stærra svæði. Hefur það verið tryggt, að þeir, sem hér eiga að fá rafmagn, séu reiðubúnir til að borga hærra verð síðar, ef það, að virkjunin verður teygð yfir stærra svæði, verður til þess, að rafmagnið verður dýrara en áður? Við þessu hef ég ekkert svar fengið.
Þá tók ekki betra við, þegar kom að hinni spurningunni, hvort þeir væru með því, að þetta yrði liður í landskerfinu, þannig að ríkið tæki þessa virkjun til eignar og umráða, þegar henta þætti. Hann segir, að það sé ekki hægt fyrir mig að fara að krefjast af þeim neinnar skuldbindingar nú, en það fór ég ekki fram á. Þessi spurning er ekki um, hvort þeir vilji samþ. frv. til raforkul., heldur hvort þeir vilji lýsa yfir, að þeir hafi ekkert á móti því, að þetta verði liður í landskerfi, hvort þeir vilji lýsa yfir, að þeir vilji, að ríkið taki þessa virkjun fyrir kostnaðarverð, hvenær sem henta þykir. Við þessu fékk ég ekkert svar.
Þeir hafa komið fram með skrifl. brtt. og fengið hv. þm. Barð. til að taka sína brtt. aftur. En ég skil ekki, að hv. þm. Barð. skuli láta þá hafa slík áhrif á sig, vegna þess að með þessari till., sem á að koma í staðinn, er ekkert sagt. Till. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta: „Við brtt. bætist: Enda sé virkjunin háð þeim ákvæðum, sem síðar kunna að verða sett um eignarhald og rekstur á raforkuveitum í landinu.“ Með þessu er ekkert sagt! Það er svo um allar virkjanir, að þær eru háðar slíkum ákvæðum. Þetta er allt annað en það, sem hv. þm. Barð. var með, því að hann vildi tryggja, að ríkið gæti tekið þessa virkjun. Ég mun því bera fram skrifl. brtt., ef till. okkar fjórmenninganna kynni að verða felld. Er hún að efni til svipuð þeirri till., sem hv. þm. Barð. flutti, en hefur nú tekið aftur. Sennilega verður till. okkar borin fyrst upp, þar sem hún fer fram á mesta breyt. á till. eins og hún liggur fyrir.