24.01.1945
Sameinað þing: 87. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 538 í D-deild Alþingistíðinda. (5403)

192. mál, rafveitulán fyrir Sauðárkrókshrepp

Frsm. (Helgi Jónasson):

Fjvn. hefur haft til meðferðar fjöldamargar till. um heimild fyrir ríkisábyrgð um rafveitulán, og þessi till. er ein af þeim. Fjvn. hefur haft samráð bæði við hæstv. samgmrh. og hæstv. fjmrh. og borið till. undir þeirra álit, og þeir hafa báðir mælt með því, að þessi lánsheimild yrði veitt. Enn fremur hefur fjvn. leitað umsagnar Rafmagnseftirlits ríkisins. Hefur orðið að samkomulagi hjá fjvn. í samráði við þessa 2 hæstv. ráðh. að mæla með, að þessi lánsheimild yrði veitt, þó með því skilyrði, að lánsheimildin yrði ekki hærri en 85% af heildarkostnaðinum og fylgdi það þessari ábyrgðarheimild eins og fjöldamörgum öðrum, sem liggja fyrir hjá hv. Alþ. Einn nm. skrifaði undir með fyrirvara, sem hann væntanlega mun gera grein fyrir, ef hann mætir hérna. Annar nm., hv. 2. landsk., áskilur sér rétt til að fylgja brtt., sem fram kom, um að ábyrgð yrði veitt fyrir öllum þeim kostnaði, sem þessu tilheyrir.

Ég þarf ekki að hafa þessi orð fleiri, en legg til. að þessi till. verði samþykkt.