24.01.1945
Sameinað þing: 87. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 538 í D-deild Alþingistíðinda. (5405)
192. mál, rafveitulán fyrir Sauðárkrókshrepp
Pétur Ottesen:
Ég vil út af þeim ummælum, sem hv. þm. Barð. hefur beint til fjvn. í sambandi við afgreiðslu þessa máls, taka það fram, að að því leyti, sem hægt er að kalla það stefnu að veita ekki ábyrgð nema fyrir 85% af láninu, þá er það samkv. till. ríkisstj., sem það er tekið upp. (GJ: Ég taldi það ekki stefnu.) En viðvíkjandi hinu atriðinu, þá vitum við allir, að mþn. í raforkumálum hefur setið á rökstólum núna að undanförnu. Það er komið fram álit frá meiri hl. þessarar n., en minni hlutinn er ekki enn, að því er ég bezt veit, búinn að skila áliti. Af þessu leiðir auðvitað, að á þessu þ. verða ekki lagðar fram neinar till. um úrlausn þessara mála eða um það, hvaða stefna verði tekin í þessum efnum.
Nú er spurningin um þær till., sem fjvn. hefur þegar mælt með, hvort þau meðmæli eru miðuð við þær kringumstæður, sem nú eru, þannig að n. hafi afgr. málið á þeim grundvelli, að ríkið hafi á hendi þessar framkvæmdir þar, sem þegar er byrjað á þeim. N. hefur einnig mælt með að leggja til, að þar, sem héruðin hafi beitt sér fyrir þessum framkvæmdum, þá verði aðstoð ríkisvaldsins miðuð við þær kringumstæður, eins og t. d. á sér stað um virkjun Andakílsár, og getur þessi till. þá líka komizt undir það, þó að framkvæmdir þar séu að öllu leyti miklu skemur á veg komnar en í hinu tilfellinu. En um þetta atriði kemur annars skýrt fram afstaða fjvn., ef hv. þm. Barð. hefur lesið nál. það, sem fylgir till. um virkjun Andakílsár. Þar er tekið fram, að þrátt fyrir það þó að n. mæli með samþ. þeirrar till., eins og hún liggur nú fyrir, þá feli það engan veginn í sér ákvörðun um það, hvernig einstakir nm. muni haga afstöðu sinni, þegar kemur til kasta Alþ. um að marka heildarstefnuna í þessum málum, sem gera má ráð fyrir, eins og kemur fram í nál., að muni verða á næsta þingi. Það er nú svo t. d. um Andakílsárvirkjunina, að þar er undirbúningur hafinn, og verður byrjað á því verki á þessu ári. En að því er snertir framkvæmdir á Sauðárkróki, þá eru þær skemmra á veg komnar, en hins vegar er full ástæða til að ætla, að þegar fjvn. og ríkisstj. hafa fjallað um þetta mál, þá verði talin ástæða til þess að veita þessa heimild, svo að hægt væri að fara að undirbúa og leita fyrir sér um efnisútvegun til þessara framkvæmda. Það fer svo eftir því, hvaða ákvarðanir verða síðar teknar á Alþ., hver verður endir þessara framkvæmda.
Ég vænti þess vegna, að afstaða n. til þessa máls sé fullskýr fyrir þm. Barð.