24.01.1945
Sameinað þing: 87. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 541 í D-deild Alþingistíðinda. (5409)
192. mál, rafveitulán fyrir Sauðárkrókshrepp
Frsm. (Helgi Jónasson):
Ég þarf ekki að hafa mörg orð um þetta mál, því að form. fjvn. skýrði afstöðu hennar. En ég vil lýsa því yfir, að ég aðhyllist aðallega þá skoðun, sem fram kemur hjá mþn. í raforkumálum, að það verði haft eitt heildarkerfi fyrir allt landið og ríkið taki að sér að leggja rafmagnið. En varðandi þá till., sem hér er til umr., þá finnst mér sanngjarnt, að hún sæti sömu meðferð og afgreiðslu og aðrar till., sem n. er búin að samþ., og vilji þeir ráðh., sem um þessi mál eiga að fjalla, hæstv. samgmrh. og hæstv. fjmrh., að þessi till. sæti sömu meðferð og aðrar slíkar till., sem rafmagnseftirlitið mælir með og telur, að geti staðið undir sér, þá sé ég ekkert á móti því, að þessi till. um ábyrgðarheimild verði látin sæta sömu meðferð og aðrar till., sem hér liggja fyrir um sama efni.