17.06.1944
Sameinað þing: 34. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1975 í B-deild Alþingistíðinda. (5462)
Gildistaka lýðveldisstjórnarskrár og forsetakjör
Forseti Íslands (Sveinn Björnsson):
Herra alþingisforseti. Háttvirtir alþingismenn. — Ég þakka fyrir það traust, sem mér hefur verið sýnt með því að kjósa mig fyrsta forseta Íslands nú.
Er ég var kjörinn ríkisstjóri í fyrsta skipti fyrir réttum 3 árum, lýsti ég því, að ég liti á það starf mitt framar öllu sem þjónustu við heill og hag íslenzku þjóðarinnar, og bað Guð að gefa mér kærleika og auðmýkt, svo að þjónusta mín mætti verða Íslandi og íslenzku þjóðinni til góðs. Síðan eru liðin 3 ár, sem hafa verið erfið á ýmsan hátt. En hugur minn er óbreyttur. Ég tek nú við þessu starfi með sama þjónustuhug og sömu bæn.
Á þessum fornhelga stað, sem svo ótal minningar eru bundnar við um atburði, sem markað hafa sögu og heill þjóðarinnar, vil ég minnast atburðar, sem skeði hér fyrir 944 árum. Þá voru viðsjár með mönnum sennilega meiri en nokkru sinni fyrr þau 70 ár, sem þjóðveldið hafði starfað þá. Og ágreiningsefnið var nokkuð, sem er öllum efnum viðkvæmara og hefur komið á ótal styrjöldum í heiminum. Það voru trúarskoðanir manna. Forfeður vorir höfðu haldið fast við hina fornu trú, Ásatrúna, sem flutzt hafði með þeim til landsins. Nú var boðaður annar átrúnaður, kristindómurinn. Lá við fullkominni innanlandsstyrjöld milli heiðinna manna og kristinna.
Alþingi tókst að leysa þetta mikla vandamál hér á Lögbergi. — Um þetta segir svo í Njálu:
„Um daginn eftir gengu hvárirtveggju til Lögbergs, ok nefndu hvárir vátta, kristnir menn ok heiðnir, ok sögðust hvárir ór lögum annarra. Ok varð þá svá mikit óhljóð at Lögbergi, að engi nam annars mál. Síðan gengu menn í braut, ok þótti öllum horfa til inna mestu óefna.“
Forustumaður kristinna manna fól nú andstæðingi sínum, hinum heiðna höfðingja Þorgeiri Ljósvetningagoða, að ráða fram úr vandræðunum. Hann gerhugsaði málið. — Um málalok segir meðal annars svo í Njálu:
„En annan dag gengu menn til Lögbergs, Þá beiddi Þorgeir sér hljóðs ok mælti: Svá lízt mér sem málum várum sé komit í ónýtt efni, ef eigi hafa ein lög allir. En ef sundr skipt er lögunum, þá mun sundr skipt friðinum, ok mun eigi við þat mega búa.“
Heiðinginn Þorgeir Ljósvetningagoði segir því næst svo: „Þat er upphaf laga várra, at menn skulu allir kristnir vera hér á landi.“
Undu allir þessum málalokum með þeim árangri, að af leiddi blómaöld Íslands, unz sundurþykkið varð þjóðveldinu að fjörtjóni.
Nú á þessum fornhelga stað og á þessari hátíðarstundu bið ég þann sama eilífa Guð, sem þá hélt verndarhendi yfir íslenzku þjóðinni, að halda sömu verndarhendi sinni yfir Íslandi og þjóð þess á þeim tímum, sem vér nú eigum fram undan.