24.01.1944
Neðri deild: 5. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1978 í B-deild Alþingistíðinda. (5473)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Stefán Jóh. Stefánsson:
Herra forseti. — Ég vil þakka hæstv. atvmrh. fyrir upplýsingarnar. Mér þykir það mikils virði, að hæstv. ríkisstjórn hefur nú hafizt handa í þessum málum. En ég vil bæta því við, að áður en þessari athugun lýkur og niðurstöður hennar koma fram, þá verður að hafa sem bezt auga með því, að eftirlit allt sé í sem beztu lagi. Ég vil fastlega vænta þess, að svo verði.