14.02.1944
Neðri deild: 12. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1983 í B-deild Alþingistíðinda. (5499)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):

Út af því, sem ég hef heyrt sagt hér, einkum af hv. tveimur síðustu ræðumönnum, þykir mér ástæða til að segja nokkur orð, sérstaklega út af ræðu síðasta ræðumanns. Hann sagði, að sleifarlagi væri um það að kenna, að við höfum ekki fengið nægan hamp. Ég ætla ekki að fara að karpa við hann um það, hvort ástæða sé til þess fyrir hann að nota það orð, en vil taka það fram, að lagt hefur verið fyrir sendiherra okkar í London og Bandaríkjunum að láta í ljós við stjórnir viðkomandi ríkja, hve alvarlega horfir. Það hefur einnig verið gerð fullkomin grein fyrir því við sendiherra Bretlands og Bandaríkjanna hér, hve ástandið er alvarlegt. En árangur hefur enginn fengizt enn þá.

En hvað snertir hamp til veiðarfæragerðar, þá hafa þeir, sem yfir okkur eru, ráð á honum, en við getum ekki tekið hann. Bandamenn telja sig ekki geta látið okkur hafa meiri hamp en þeir gera, telja sig hafa meiri þörf fyrir hann annars staðar, til hernaðarþarfa. Ég vil aðeins upplýsa, að allt hefur verið gert af hálfu stjórnarinnar á undanförnum mánuðum, sem hægt hefur verið, til þess að leysa þessi vandkvæði, en við getum ekki tekið það, sem þeir vilja ekki láta okkur hafa.