18.02.1944
Sameinað þing: 18. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1985 í B-deild Alþingistíðinda. (5502)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):
Herra forseti. — Þeirri fyrirspurn, sem beint var til mín, vil ég svara á þessa leið: Samkvæmt þeim lögum, sem gilda hér á landi um sáttaumleitanir, þá er gert ráð fyrir því, að stundum geti verið hagkvæmt að setja upp sáttanefnd til sáttaumleitana.
Í því máli, sem hér liggur fyrir, gekk það þannig til, að sáttasemjari átti tal við mig og taldi æskilegt í þessu tilfelli, að komið yrði upp sáttanefnd, og spurði ég hann til um það, hvaða menn hann teldi æskilegt að fá í þá nefnd. Þetta gerði hann og tilnefndi þrjá menn. Ég ræddi síðan við þessa þrjá tilgreindu menn og fékk þá til þess að takast á hendur að fara í sáttanefndina. Að því búnu var svo nefndin skipuð eftir tilmælum sáttasemjara.