18.02.1944
Sameinað þing: 18. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1986 í B-deild Alþingistíðinda. (5505)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Forsrh. (Björn Þórðarson):

Hv. þm. S.-Þ. beindi þriðja lið fyrirspurnar sinnar til mín, og var sá liður fyrirspurnarinnar á þá leið, hvaða takmörk stjórnin hugsaði sér, að vinnudeila sú, sem nú er hafin eða kann að hefjast, ætti að hafa.

Stjórnin hefur nú ekki enn þá myndað sér skoðanir um það, sem fyrirspyrjandi vildi fá að vita, af þeim ástæðum, að það er ekki enn þá komið á daginn, hversu víðtæk þessi deila kann að verða. En það er ekki nema eðlilegt, að fyrirhyggjusamur maður, eins og hv. þm. S.-Þ., hugsi um það, hvort vinnudeila sú, sem kann að brjótast út, komi aðeins til með að taka til hagsmuna vinnuveitenda og verkalýðs, eða hvort hún einnig kemur til með að fara inn á lífæð þjóðfélagsins, eins og hann orðaði það.

Ég býst við, að hver og ein ríkisstjórn mundi vilja hamla því í lengstu lög, að vinnudeilur nái til að grípa inn á lífæð þjóðarinnar, en hvaða aðgerðir eigi að hafa til þess að hamla því, verður að ákveða, þegar það hefur sýnt sig, hversu mikla útbreiðslu þessi vinnudeila kann að hafa.

Ef nú kemur til þess, að vinnudeila verður og hún tekur svo djúpt í þjóðlífið, eins og hv. fyrirspyrjandi gat gert sér hugmynd um, þá mun ríkisstj. ljúft að leita styrktar Alþ., ef þess þarf, til þess að skipa málunum svo, að þjóðfélagið biði sem minnst tjón af.