04.01.1945
Sameinað þing: 80. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1998 í B-deild Alþingistíðinda. (5535)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Hermann Jónasson:

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. atvmrh. fyrir þau svör, sem hann veitti í þessu máli. Í sambandi við fyrstu spurninguna vil ég taka fram, að utanríkismálanefnd hefur mjög lítið um það mál fjallað, en hann minntist á, að ég hefði aðstöðu til að fylgjast með því, þar sem ég ætti sæti í þessari nefnd. Það skiptir ekki máli í þessu sambandi, að ég hef ekki mætt á tveim síðustu fundum nefndarinnar um þetta mál. Varamaður minn í nefndinni mætti, og við höfum rætt jafnóðum um það, sem þar hefur gerzt. Var aðeins örlítið skýrt frá þessu á einum fundi rétt eftir að fisksölusamningnum var sagt upp og önnur vandkvæði komu í sambandi við uppsögn annarra samninga, sem ég vil, að rædd séu hér á þinginu, — en ekki hvað gera ætti í málinu annað en það að senda skeyti, sem munu hafa verið send. Væri sennilega full ástæða til að birta þau skeyti og það, sem gert hefur verið í sambandi við þetta mál. Ekki af því, að ég sé að segja, að það sé óeðlileg afgreiðsla á þeim skeytum, heldur af því, að það er máske algengari ósiður hjá okkur en meðal annarra þjóða, að við ræðum ekki fyrir opnum dyrum viðskiptin fyrir okkar eigin þjóð. T.d. ræða flestar þjóðir stöðu Íslands eftir styrjöldina nema við sjálfir. Það er engin ástæða til að dylja, hvað það er, sem Englendingar hafa farið fram á, og ber að skýra frá því opinberlega. A.m.k. er það mál, sem kemur mjög til athugunar.

Ég er þó með þessu engan veginn að álasa þessari hæstv. ríkisstjórn, því að þetta hefur verið siður og það meðan ég átti sæti í ríkisstjórn. En þetta er atriði, sem ég kemst ekki hjá að minnast á í sambandi við þetta mál.

Ég efast um, að margir hv. þm. viti um þann samning, sem sagt var upp fyrir næstum tveim mánuðum, um eina af nauðsynjavörum okkar, og þeir fylgist með því, hvernig því máli reiðir af. Eins er um þennan fisksölusamning. Það er ekki á vitund margra hv. þm., hvernig gangurinn hefur verið í þeim málum. og ég efast um, að öllum sé það kunnugt, hvað Englendingar hafa farið fram á í sambandi við þau mál. Á seinasta fundinum um þetta mál, í desember, var lögð á það sérstök áherzla. að ekki væri látið dragast að senda nefnd til Englands, þar sem mjög reið á að komast að samningum við Englendinga áður en samningstíminn væri útrunninn. Nú eru þessi mál, eins og hæstv. atvmrh. benti á, komin í nokkurn eindaga. T.d. vitum við ekkert um, hvernig fer með rekstur frystihúsanna eða yfirleitt hvernig þessi mál standa. Ég get upplýst hér, að það hefur beinlínis verið ákveðið að lækka og það verulega þá upphæð, sem lánuð er út á frosinn fisk, að mér er sagt í bönkunum.

Eftir því, sem hæstv. atvmrh. upplýsti, er ekki útlit fyrir, að frystihúsin treysti sér til að hafa rekstur í gangi að svo stöddu. Viðvíkjandi skipum kvað ráðh. þetta í athugun. En ég hygg, að komið hafi til orða að taka skip leigunámi til flutninga, og vitanlega gildir sú regla jafnt gagnvart línuveiðurum og togurum að mínu áliti. En ég sé ástæðu til að minnast á, að ég tel mjög varhugavert leigunám í þessu sambandi. En ég álít eðlilega leið hjá ríkisstj. að setja l. um hámarksleigu. Gróði hefur verið mikill á flutningum á fiski undanfarið, og það gæti haft sínar afleiðingar á þetta mat, sem færi fram á leigunni. Gæti svo farið, að það mat væri þannig, að skipin hirtu mikið af gróðanum, sem mundi e.t.v. verða talinn eðlilegur í samræmi við þá reynslu, sem var á fiskflutningum undanfarin ár, og það yrði lagt sem skattur á útvegsmenn og fiskimenn. Þó að deila megi um, hvaða hámarksleiga sé réttlát, er ég ekki í vafa um að slík l. fá staðizt, því að þetta er eins og hver annar skattur, sem lagður er á til að jafna aðstöðu milli þessara framleiðenda, og hefur slíkt verið gert í mörgum tilfellum.

Ég vil að lokum vekja athygli á því, sem hæstv. atvmrh. sagði um ábyrgðina. Ég vil vona, að þessi ábyrgð verði ekki mikil áhætta. Það má benda á, að erfiðleikar í flutningum geta orðið nokkuð miklir, vegna þess að um leið og tekin er ábyrgð á ísfiskinum, má alveg gera ráð fyrir, meðan samningar nást ekki viðvíkjandi sölu frosna fisksins, að ekki verði fryst, en allur fiskur einmitt settur í ís, til þess að ná því að fá ábyrgð á verðið. En það kom fram hjá hæstv. ráðh., að fiskimálan. hefur ekki gert þetta í samráði við hann. Og það kemur beinlínis fram í umr., að þessi ábyrgð getur skipt milljónum eða tugum milljóna, ef illa fer. Og ákvörðunin er tekin af fiskimálan. í samráði við atvmrh., en ekki stj. í heild eða fjmrh. einu sinni. Þannig skildi ég orð hans, því að það var tvítekið, að það væri í samráði við hann.

Eftir að samlögin höfðu frétt, að fiskimálan. tæki ábyrgð á þessu fiskverði við Faxaflóa, þá fóru þau fram á það sama af eðlilegum ástæðum. Það var ekki nema mannlegt. En mér þykir leitt, að hæstv. ráðh. skuli ekki hafa gert sér ljóst, að rök hans fyrir því, að rétt sé að taka á sig ábyrgð fyrir Faxaflóaverstöðvar, en ekki annars staðar á landinu, nefnilega að það væri engin hætta að taka ábyrgðina fyrir Faxaflóa, — að þessi rök verka alveg öfugt við það, sem þau áttu að gera samkv. hans ályktun. Hvers vegna á þá að taka ábyrgðina við Faxaflóa, ef fiskútflutningur þaðan er áhættuminnstur? Þá ætti að afhenda fiskimálan. þetta án ábyrgðar. En á öðrum stöðum eru erfiðleikarnir meiri og þess vegna áhættan meiri og því athugandi mál, hvort ábyrgð skuli tekin. þar . Ef þarf að taka ábyrgð til þess að fá útgerðarmenn til að gera út, þá er ástæðan meiri þar, sem erfiðleikarnir eru meiri. Og ef við Faxaflóa fæst ábyrgð, þar sem talin er bezt aðstaðan vegna fiskimimanna og vegna þess, hve magnið er mikið, þá býst ég við, að það verði fleiri, sem álykta þannig úti um landið. Fyrst þeir fá þetta við Faxaflóa, þá er enn þá ríkari ástæða fyrir okkur að óska eftir því. Ég skal ekki segja meira um þetta að svo komnu. En auðsætt mál er það, að enn þá er óákveðið, hvernig rætist úr málum fyrir afskekkta staði viðvíkjandi saltfiskinum og fyrir frystihúsunum úti um landið. Hér fer fiskurinn fyrst og fremst í ís, og frystihúsin stöðvast að svo komnu, meðan samningar nást ekki og meðan þessi ábyrgð gildir. En það vil ég endurtaka að lokum, að ég vænti þess, að hæstv. ríkisstj. athugi, að með þeim ábyrgðum, sem teknar eru við Faxaflóa, er ekki hægt að komast hjá því að taka ábyrgð annars staðar. Það verður að útiloka, að hægt sé að taka ábyrgð fyrir aðeins lítinn hluta landsins. Menn mundu þola ströng ákvæði viðvíkjandi verðjöfnun á útfluttum fiski, en misrétti þolir enginn. Ég trúi ekki, að ríkisstj. geri sér ekki fljótt ljóst, að það verður að taka þessa ábyrgð um allt landið, a.m.k. fyrir fisk sömu tegundar.

Ég þakka hæstv. ráðh. svo fyrir þessi svör. Þó að ekki hafi margt upplýstst í þessu máli, hygg ég, að hv. þm. sjái af ræðu hæstv. ráðh., að það var ekki ástæðulaust að bera fram þessa fyrirspurn og taka þetta mál til athugunar á Alþ., annaðhvort á lokuðum eða opnum fundi. Því að það eru og fleiri atriði, sem ég hef ekki minnzt á í sambandi við fisksölumálin, sem þarf að ræða og spyrjast fyrir um, hvar á vegi eru stödd.