04.01.1945
Sameinað þing: 80. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2000 í B-deild Alþingistíðinda. (5538)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Atvmrh. (Áki Jakobsson):
Það er eitt atriði í ræðu hv. þm. Str. Ég ætla ekki að færa rök að því, að ekki skuli ábyrgzt fyrir aðra fiskútflytjendur en þá við Faxaflóa. En ég skýrði frá þeirri staðreynd, að fiskimálan. hefur bundið sig við Faxaflóa. Og þegar hún tekur þessa ákvörðun í samráði við mig, þá er hún að meta áhættuna við Faxaflóa. Það var það, sem ég tók fram. Ég sagði, að úti um landið væri áhættan viða öðruvísi og miklu meiri en hér við Faxaflóa, og þess vegna annað mál og miklu stærra, ef ætti að taka ábyrgð á fiskverði úti um allt landið. Ég var ekki að hafa á móti því, það getur vel verið rétt. Því að alls staðar á landinu er jafnmikil nauðsyn á því, að fiskverð lækki ekki og helzt hækki, það er öllum ljóst, að nauðsynlegt er að gera til þess einhverjar opinberar ráðstafanir. En ég sem sagt skýrði frá staðreynd, að þegar fiskimálanefnd telur sig geta borgað 45 au. verð við Faxaflóa, hefur hún gert sér mynd af þeirri áhættu, sem er hugsanleg, og á grundvelli þeirrar myndar gerir hún þessa uppástungu. Ég fyrir mitt leyti tel ákaflega æskilegt, ef hægt er að koma því sama við annars staðar á landinu. Þá verður náttúrlega að taka fyrir annað atriði. Ég veit, að fiskimönnum við Faxaflóa þætti hart að gengið að reka í einu lagi fiskútflutning um allt landið, ef t.d. gróðinn frá Faxaflóa yrði segjum 30% , en tap 30% af fiski annars staðar. Og svo væru þessir menn látnir borga fiskflutninga fyrir aðra. Það þyrfti þá að gera sérstakar ráðstafanir til að afmarka ákveðin svæði, til þess að fiskimenn fái eðlilegt verð.
En það, hvort farið skuli inn á þá braut að tryggja fiskverð annars staðar og hjálpa útvegsmönnum til að skipuleggja útflutning á sínum fiski, að hið opinbera taki það í sínar hendur í samráði við fiskimenn, í hvaða formi sem það yrði rekið, það er allt annað og mjög ólíkt mál því, sem hér liggur fyrir.