04.01.1945
Sameinað þing: 80. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2001 í B-deild Alþingistíðinda. (5540)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Gísli Jónsson:

Herra forseti. — Mér skilst, að því sé slegið alveg föstu af hv. þm. Str., að þetta spor sé þegar stigið. Það getur verið, að aðrir samþm. mínir hafi skilið þetta öðruvísi. En eftir því, sem ég veit bezt, er það ekki stigið. Ég veit ekki betur en að Landssamband útvegsmanna sitji á fundum um það, hvort það eigi ekki að taka allan útflutning við Faxaflóa í sínar hendur, líkt og Norðfjörður gerir. Er ákaflega einkennilegt, ef búið er að binda allan útflutning við Faxaflóa við fiskimálan. Ég held það sé alger misskilningur. Vildi ég heyra álit hæstv. ráðh. um þetta, því að ég veit ekki betur en rætt hafi verið um það í dag á fundi Landssambands útvegsmanna, hvort það sjái sér ekki fært að mynda sérstök samtök um útflutning við Faxaflóa í líku formi og á Austurlandi. Það er engin áhætta fyrir ríkissjóð. Og ef þeir, sem sjálfir eiga fiskinn, vilja það, þá dettur mér ekki í hug, að hæstv. atvmrh. fari að þrengja neinu öðru í gegn, á móti vilja mannanna, sem veiðina eiga, og skapa með því ósamræmi kringum allt landið.

Hins vegar get ég bent hv. þm. Str. á það, að útilokað er að láta sama kostnað verða við útflutning á fiski per smálest frá hinum mismunandi stöðum á landinu. Það kostar upp undir 50% meira fyrir fisk frá Norðurlandi en Faxaflóa, meira frá Vesturlandi en Austurlandi. Þess vegna er svo mikill ágóðinn af sölu frá Norðfirði, að niðurstaðan hefur hvergi verið eins góð. Það er stutt að fara og smáskip notuð, sem eru ódýr í leigu. Þetta er allt annað en flutningur frá Ísafirði og Vestfjörðum yfirleitt. Og ef á að fara að taka málið upp á þeim grundvelli, að ríkissjóður tryggi öllum sama verð, kemur vitanlega að því, sem hæstv. ráðh. benti á, að þeir við beztu verstöðvarnar mundu neita þeim skatti. að gróði þeirra væri tekinn til þess að jafna tapið á óhagkvæmu stöðunum. Hins vegar sé ég ekkert á móti því, að farið sé inn á þá braut, sem langeðlilegust er, að ákveðin svæði komi sér saman um að flytja fisk út, eins og menn hafa þegar komið sér saman um á Austurlandi og er verið að reyna að koma í kring við Faxaflóa. Og svo langt er komið, að Akranesingar telja sig ekki þurfa neina aðstoð til að koma sínum fiski á erlendan markað á þessari komandi vertíð.