10.01.1945
Neðri deild: 101. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2016 í B-deild Alþingistíðinda. (5561)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Pétur Ottesen:

Ég ætla að það væri 17. nóv. s.l., sem frv., sem ég flutti í Nd. um breyt. á l. um fiskimálan. viðvíkjandi útflutningi og hagnýtingu markaða, var vísað í sjútvn. Það er þess vegna æði langt um liðið síðan þetta mál fór til n., og enn hefur ekkert á því bólað, að n. hafi afgr. málið. Mér er kunnugt um það, að það er almennur áhugi fyrir þessu máli, og til sannindamerkis vil ég taka fram, að komnar eru til Alþ. áskoranir, sem sendar hafa verið viðkomandi þm. frá 15 útgerðarstöðum, um það að samþ. þetta frv. Með leyfi hæstv. forseta skal ég telja upp, hverjir staðirnir eru. Þeir eru: Sandgerði, Keflavík, Garður, Ólafsvík, Ísafjörður, Dalvík, Bíldudalur, Ólafsfjörður, Stykkishólmur, Seyðisfjörður, Fáskrúðsfjörður, Hornafjörður, Eskifjörður. Og það er vitað, að fleiri áskoranir í þessa átt eru einnig á ferð. Ég vil þess vegna skora mjög á sjútvn. að afgr. þetta mál, en það má ekki dragast lengi, ef það á að geta gengið fram á þessu þingi. Jafnframt vil ég biðja hæstv. forseta um að veita þessum tilmælum mínum brautargengi við hv. n. til frekari áherzlu um það, að hún inni af hendi skyldu sína.