24.01.1945
Sameinað þing: 87. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2017 í B-deild Alþingistíðinda. (5565)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

forseti (GSv):

Áður en gengið er til annarra mála á dagskránni, sem eru mörg, skal ég geta þess, að að vissu leyti skiptist dagskráin í tvennt. Er ætlazt til, að þessi dagur fari sem mest í að koma sem flestum af þessum málum þangað, sem þau eiga að fara. Tuttugu og tvö mál voru á dagskránni, nú er eftir tuttugu og eitt. Fyrstu málin allt að fjórtánda máli eru mál, sem væntanlega eiga að fara að meira og minna leyti til frekari aðgerða í n. Þau eru þar fyrir tekin fremst á dagskrána, að ætlunin var að koma þeim svo langt áleiðis, að þau færu sjálfkrafa af dagskránni til þeirra aðila, sem um þau eiga að fjalla. Svo koma málin frá fjórtán og út, sem eru meira og minna áríðandi. Þau hafa verið í n. og biða nú frekari meðferðar, og munu sum taka umræðutíma. — Um fyrri hlutann er það að segja, að þess er mjög óskað, að hv. þm. vildu ræða þau sem minnst, svo að takast megi að koma þeim til þeirra n., sem við þeim eiga að taka, og ræðst það þá síðar, hvort hver n. getur skilað þessum málum. Loks vil ég geta þess, að hv. þm. geta varla vænzt þess, að öll mál, sem koma á síðustu stund, geti hlotið afgreiðslu til fulls og alls. Þingi er nú senn lokið, sem kunnugt er, og hv. þm. geta ekki búizt við, að mál, sem fram eru borin, þegar liðið er ár eða meira frá því, að þing var sett, nái afgreiðslu, nema mikil nauðsyn sé á framgangi þeirra.

Ég mun nú taka fyrir nokkur mál til reynslu úr fyrri hlutanum, sem ekki er líklegt, að þurfi svo mjög að ræða, og sjá, hvernig fer um þau.