18.09.1944
Sameinað þing: 44. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2021 í B-deild Alþingistíðinda. (5608)

Landbúnaðarvísitala og kjötverð

Bjarni Ásgeirsson:

Herra forseti. — Í sambandi við þetta mál langar mig til þess að bera fram fyrirspurn vegna tilrauna, sem hæstv. ríkisstj. hefur haft með höndum um sölu hrossakjöts á erlendum markaði. Það fóru fram bréfaskriftir á milli Búnaðarfél. og ríkisstj. síðastl. ár, og í sumar áréttaði Búnaðarfél. nauðsynina á sölu hrossakjöts erlendis. Vil ég nú biðja hæstv. atvmrh. að upplýsa, hvernig komið er því máli.