21.10.1944
Sameinað þing: 60. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2021 í B-deild Alþingistíðinda. (5612)
Stjórnarskipti
Forsrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti, háttvirtu alþingismenn. Ég skal leyfa mér að birta háttv.
Alþingi svo hljóðandi forsetaúrskurð um skipun og skipting starfa ráðherra o.fl.:
„Forseti Íslands hefur í dag skipað þessa ríkisstjórn:
I. Forsætisráðherra, Ólafur Thors. Undir hann heyra eftirgreind mál: Stjórnarskráin, Alþingi, nema að því leyti, sem öðruvísi er ákveðið, almenn ákvæði um framkvæmdastjórn ríkisins, skipun ráðherra og lausn, forsæti ráðuneytis, skipting starfa ráðherranna, mál, sem snerta stjórnarráðið í heild. Utanríkismál.
II. Ráðherra Áki Jakobsson. Undir hann heyra sjávarútvegsmál, þar undir Fiskifélagið, síldarútvegsmál (síldarverksmiðjur og síldarútvegsnefnd), Fiskimálanefnd, Landssmiðjan, Atvinnudeild Háskólans, Rannsóknaráð ríkisins, flugmál.
III. Ráðherra Brynjólfur Bjarnason. Undir hann heyra kennslumál, þar undir skólar, sem ekki eru sérstaklega undan teknir, útvarpsmál og viðtækjaverzlun, barnaverndarmál, menntamálaráð, leikhúsa- og kvikmyndamál. Ríkisprentsmiðjan.
IV. Ráðherra Emil Jónsson. Undir hann heyra kirkjumál, samgöngumál, þar undir vegamál, skipagöngur, póst- og símamál, loftskeytamál, vitamál, hafnarmál, mælitækja- og vogarmál, rafmagnsmál, þ. á m. rafmagnseftirlit ríkisins og rafveitur ríkisins, iðnaðarmál, þar undir iðnskólar, iðnfélög. Einkaréttarleyfi. Vatnamál, þar undir sérleyfi til vatnsorkunotkunar.
V. Ráðherra Finnur Jónsson. Undir hann heyrir dómaskipun, dómsmál, þar undir framkvæmd hegningardóma, hegningarhús og fangahús, tillögur um náðun, veiting réttarfarslegra leyfisbréfa, málflutningsmenn, lögreglumálefni, þar undir gæzla landhelginnar, áfengismál, strandmál, sifjarréttarmál, erfðaréttarmál, persónuréttarmál, eignarréttarmál, yfirfjárráðamál, lög um kosningar til Alþingis og kjördæmaskipting, umsjón um framkvæmd alþingiskosninga, ríkisborgararéttur, útgáfa Stjórnartíðinda og Lögbirtingablaðs. Félagsmál, þar undir styrktarstarfsemi til berklasjúklinga og annarra sjúklinga, sem haldnir eru langvinnum sjúkdómum, sjúkrasjóðir, ellistyrktarsjóðir, öryrkjasjóðir, slysatryggingarsjóðir, lífsábyrgðarsjóðir og aðrir tryggingasjóðir, nema sérstaklega séu undan teknir. Byggingarfélög. Heilbrigðismál, þar á meðal sjúkrahús og heilsuhæli. Verzlunarmál, sem ekki eru í úrskurði þessum falin öðrum ráðherra, þar undir verzlunarskólar, verzlunarfélög, kaupfélög og samvinnufélög.
VI. Ráðherra Pétur Magnússon. Undir hann heyra fjármál ríkisins, þar undir skattamál, tollmál og önnur mál, er snerta tekjur ríkissjóð, svo sem ef verzlun er rekin til að afla ríkissjóði tekna. Undirskrift ríkisskuldabréfa. Fjárlög, fjáraukalög og reikningsskil ríkissjóðs. Hin umboðslega endurskoðun. Embættisveð. Eftirlit með innheimtumönnum ríkisins. Laun embættismanna. Eftirlaun, lífeyrir embættismanna og ekkna þeirra. Peningamál, þar undir peningaslátta. Yfirleitt fer þessi ráðherra með öll þau mál, er snerta fjárhag ríkisins eða landsins í heild, nema þau eftir eðli sínu eða sérstöku ákvæði heyri undir annan ráðherra. Hagstofa Íslands. Mæling og skrásetning skipa. Enn fremur viðskiptamál, þar undir innflutningsverzlun og utanríkisverzlun, bankamál og sparisjóðir, gjaldeyrismál, verðlagsmál (dýrtíðarráðstafanir). Landbúnaðarmál, þar undir ræktunarmál, þar á meðal skógræktar- og sandgræðslumál, búnaðarfélög, búnaðarskólar, garðyrkjuskólar, húsmæðraskólar, dýralækningamál, þjóðjarðamál.
Ráðherrafundi skal halda um nýmæli í lögum og um mikilvæg stjórnarmálefni. Svo skal og ráðherrafund halda, ef einhver ráðherra óskar að bera þar upp mál.
Með úrskurði þessum er úr gildi fallinn konungsúrskurður frá 29. desember 1924, um skipun og skipting starfa ráðherra o.fl., með áorðnum breytingum.
Gjört í Reykjavík, 21. okt. 1944.
Sveinn Björnsson.
(L. S.)
Ólafur Thors.
Forsetaúrskurður um skipun og skipting starfa ráðherra o. fl.“
Ríkisstjórnin hefur komið sér saman um málefnagrundvöll, er felst í þeirri stefnuskrá, er ég nú skal leyfa mér að lesa upp.
A. Stjórnin vill vinna að því að tryggja sjálfstæði og öryggi Íslands, með því m.a.
1. Að athuga, hvernig sjálfstæði þess verði bezt tryggt með alþjóðlegum samningum.
2. Að hlutast til um, að Íslendingar taki þátt í því alþjóðasamstarfi, sem hinar sameinuðu þjóðir beita sér nú fyrir.
3. Að undirbúa og tryggja svo vel sem unnt er þátttöku Íslands í ráðstefnum, sem haldnar kunna að verða í sambandi við friðarfundinn og Íslendingar eiga kost á að taka þátt í.
4. Að hafa náið samstarf í menningar- og félagsmálum við hin Norðurlandaríkin.
B. Að taka nú þegar upp samningatilraunir við önnur ríki í því skyni að tryggja Íslendingum þátttöku í ráðstefnum, er fjalla um framleiðslu, verzlun og viðskipti í framtíðinni, til þess þannig að leitast við:
1. Að ná sem beztum samningum um sölu á framleiðsluvörum þjóðarinnar og sem hagkvæmustum innkaupum.
2. Að fá viðurkenndan rétt Íslands til sölu á öllum útflutningsafurðum landsins, með tilliti til alþjóðlegrar verkaskiptingar á sviði framleiðslu.
3. Að vinna að rýmkun fiskveiðalandhelginnar og friðun á þýðingarmiklum uppeldisstöðvum fisks, svo sem Faxaflóa.
Samninganefndir verði svo skipaðar, að stéttum þeim, sem mest eiga í húfi, verði tryggt, að hagsmuna þeirra sé vel gætt.
II. A. Það er meginstefna stjórnarinnar að tryggja það, að allir landsmenn geti haft atvinnu við sem arðbærastan atvinnurekstur.
Þessu markmiði leitast stjórnin við að ná m.a. með þessu:
1. Af erlendum gjaldeyri bankanna í Bretlandi og Bandaríkjunum sé jafnvirði eigi minna en 300 millj. ísl. kr. sett á sérstakan reikning. Má eigi ráðstafa þeim gjaldeyri án samþykkis ríkisstjórnarinnar og eingöngu til kaupa á eftirtöldum framleiðslutækjum:
1. Skip, vélar og efni til skipabygginga o.fl., samtals a.m.k. 200 milljónir kr.
2. Vélar og þess háttar til aukningar og endurbóta á síldarverksmiðjum, hraðfrystihúsum, niðursuðu, svo og til tunnugerðar, skipasmíða o.fl. — um 50 millj. kr.
3. Vélar og þess háttar til áburðarverksmiðju, vinnslu og hagnýtingar landbúnaðarafurða og jarðyrkjuvélar og efni til rafvirkjana o.fl. — um 50 milljónir kr.
Fært skal milli flokka, ef ríkisstjórnin telur ráðlegt, að fengnum tillögum nefndar þeirrar, sem um getur í 4. lið hér á eftir. Nefnd sú geri sem fyrst tillögur um frekari hagnýtingu erlendra innistæðna, svo sem um efniskaup til bygginga. Almennt byggingarefni, svo sem sement og þess háttar, telst með venjulegum innflutningi. Efni til skipa, véla og þess háttar, sem smíðað er innanlands, telst með innflutningi framleiðslutækja.
2. Ríkisvaldið hlutast til um, að slík tæki verði keypt utanlands eða gerð innanlands svo fljótt sem auðið er.
3. Tæki þessi skulu seld einstaklingum eða félögum, og slík félög m.a. stofnuð af opinberri tilhlutan, ef þörf gerist.
Framleiðslutæki, sem keypt kunna að verða fyrir framlag hins opinbera að nokkru eða öllu leyti, skulu ekki seld með tapi, nema öll ríkisstjórnin samþykki eða Alþingi ákveði.
4. Ríkisstjórnin skipar nefnd, er geri áætlanir um, hver atvinnutæki þurfi að útvega landsmönnum til sjávar og sveita, til að forðast, að atvinnuleysi skapist í landinu.
5. Ríkisstjórnin setur nánari reglur um starfsvið nefndarinnar og vald hennar. Skal það m.a. ákveðið, að nefndin skuli leita fyrir sér um kaup framangreindra framleiðslutækja erlendis og smiði þeirra innanlands og hafa milligöngu fyrir þá aðila, sem þau vilja kaupa og þess óska.
Komi í ljós, að vegna viðskiptareglna annarra þjóða verði talið hagkvæmt eða nauðsynlegt, að einungis einn aðili fjalli um kaup ofangreindra tækja, svipað og nú er um sölu á flestri útflutningsvöru landsmanna, skal ríkisvaldið hafa alla milligöngu í þessum efnum.
6. Við nýsköpun .þá á atvinnulífi þjóðarinnar, er hér hefur verið getið, skal hafa sérstaka hliðsjón af þeim sölumöguleikum, sem tekst að tryggja Íslandi í heimsviðskiptunum.
Framkvæmdum innanlands í sambandi við öflun þessara framleiðslutækja skal haga með hliðsjón af atvinnuástandi í landinu; í því skyni, að komið verði í veg fyrir atvinnuleysi, meðan verið er að útvega hin nýju framleiðslutæki.
Ríkisstjórnin mun taka til athugunar, hverjum öðrum framkvæmdum ríkisvaldið skuli beita sér fyrir í því skyni að forðast atvinnuleysi.
Fjár til þessara þarfa skal, að svo miklu leyti sem það fæst eigi með sköttum, aflað með lántökum, e.t.v. skyldulánum. Athugað skal, hvort til greina komi skylduhluttaka í atvinnutækjum eftir fjáreign.
B. Ríkisstjórnin leggur áherzlu á að tryggja vinnufriðinn í landinu, og hefur í því skyni aflað sér yfirlýsinga frá stjórn Alþýðusambands Íslands og framkvæmdanefnd Vinnuveitendafélags Íslands um þetta.
C. Ríkisstjórnin hefur, með samþykki nægilegs meiri hluta Alþingis, ákveðið:
1. Að sett verði á þessu þingi launalög, í meginatriðum í samræmi við frumvarp það, er 4 alþingismenn, einn úr hverjum þingflokki, nú hafa lagt fyrir efri deild Alþingis, með breytingum til móts við óskir B.S.R.B.
2. Að samþykkt verði frumvarp það, er nú liggur fyrir Alþingi um breytingu á dýrtíðarlögunum.
3. Með því að fjárlagafrumvarp það, er nú liggur fyrir Alþingi, er raunverulega með stórkostlegum tekjuhalla og er auk þess þannig úr garði gert, að ekki verður með nokkru móti hjá því komizt að hækka útgjöld til verklegra framkvæmda verulega frá því, sem þar er áætlað, mun stjórnin til neydd að leggja á allháa nýja skatta, þar eð hún telur sér skylt að gera það, sem unnt er, til að afgreiða hallalaus fjárlög. Verður leitazt við að leggja skattana á þá, er helzt fá undir þeim risið, og þá fyrst og fremst á stríðsgróðann. Skattar á lágtekjumenn verða ekki hækkaðir.
Eftirlit með framtölum verður skerpt.
D. Ríkisstjórnin hefur með samþykki þeirra þingmanna, er að henni standa, ákveðið, að komið verði á á næsta ári svo fullkomnu kerfi almannatrygginga, sem nái til allrar þjóðarinnar, án tillits til stétta eða efnahags, að Ísland verði á þessu sviði í fremstu röð nágrannaþjóðanna. Mun frumvarp um slíkar almannatryggingar lagt fyrir næsta reglulegt Alþingi, enda hafi sérfræðingar þeir, er um undirbúning málsins munu fjalla, lagt fram tillögur sínar í tæka tíð.
E. 1. Ríkisstjórnin hefur ákveðið og tryggt, að samþykkt verði á Alþingi, að Ísland gerist nú þegar þátttakandi í I. L. O., eða í þeirri stofnun, er við hennar störfum kann að taka.
2. Ríkisstjórnin vill gera það, sem í hennar valdi stendur, til þess að hindra, að tekjur hlutarsjómanna rýrni, enda verði leitazt við að bæta lífskjör þeirra og skapa þeim meira öryggi.
3. Ríkisstjórnin mun leggja kapp á að hafa sem öruggastan hemil á verðlagi og mun vinna að því, að sem minnstur kostnaður falli á vörurnar við sölu þeirra og dreifingu. Verður tekið til ýtarlegrar athugunar, á hvern hátt þessu marki bezt verði náð.
4. Loks hefur ríkisstjórnin ákveðið, að hafin verði nú þegar endurskoðun stjórnarskrárinnar, með það m.a. fyrir augum, að sett verði ótvíræð ákvæði um réttindi allra þegna þjóðfélagsins til atvinnu, eða þess framfæris, sem tryggingarlöggjöfin ákveður, félagslegs öryggis, almennrar menntunar og jafns kosningaréttar.
Auk þess verði sett þar skýr fyrirmæli um verndun og eflingu lýðræðisins og um varnir gegn þeim öflum, sem vilja vinna gegn því. Endurskoðun þessari verði lokið svo fljótt, að frumvarpið verði lagt fyrir Alþingi áður en kosningar fara fram og eigi síðar en síðari hluta næsta vetrar, og leggur stjórnin og flokkar þeir, er að henni standa, kapp á, að frumvarp þetta verði endursamþykkt á Alþingi að afloknum kosningum.
Stjórnin beitir sér fyrir, að sett verði nefnd, skipuð fulltrúum frá ýmsum almennum samtökum, stjórnarskrárnefnd til ráðgjafar.
Eins og menn sjá, hefur stjórnin sett sér þau tvö höfuðmarkmið að tryggja sjálfstæði og öryggi Íslands út á við og að hefja stórvirka nýsköpun í atvinnulífi þjóðarinnar.
Stefna stjórnarinnar út á við er ljós og þarfnast engra skýringa. Vona ég, að hún fagni óskiptu fylgi þjóðarinnar.
Um stefnumarkið inn á við skal ég leyfa mér að fara örfáum orðum til skýringar.
Svo sem kunnugt er, hafa allir þingflokkarnir staðið í nær óslitnum samningaumleitunum um málefnagrundvöll og myndun fjögurra flokka stjórnar allt frá því í byrjun júní s.l. og þar til mánudaginn 2. þ. m., að Framsóknarflokkurinn lýsti yfir, að hann myndi eigi lengur, að óbreyttum kringumstæðum, taka þátt í þeim viðræðum. Í öllum þessum umræðum hefur frá öndverðu ríkt fullkomið samkomulag um, að kappkosta bæri að tryggja, að þeim fjármunum, er Íslendingum hafa áskotnazt, yrði varið til þess að byggja upp atvinnulíf þjóðarinnar til sjávar og sveita og koma því í nýtízku horf, en yrðu ekki að eyðslueyri.
Þetta meginatriði hefur nú stjórnin tekið upp í stefnuskrá sína. Ákveðið er, að fyrst um sinn skuli bundnar 300 millj. kr. af erlendum innstæðum þjóðarinnar, er eigi megi gera að eyðslueyri og eigi verja til annars en nýsköpunar atvinnulífsins. Þessi gjaldeyrir er til sölu hverjum þeim, sem hann vill kaupa til einhverra þeirra framkvæmda, er falla inn í nýsköpunina, og mun stjórnin eftir megni greiða götu þeirra, er hefjast vilja handa í því skyni, jafnt til sjávar sem sveita. Því til tryggingar, að ekki lendi við orðin ein, mun ríkisstjórnin láta leita fyrir sér um kaup slíkra tækja erlendis og smíði þeirra hérlendis. Er það ætlað, að einstaklingar og félög, þar með talin bæjar- og sveitarfélög, kaupi þessi tæki, og gert ráð fyrir, að ef þess gerist þörf, muni ríkisstjórnin hlutast til um stofnun félaga í því skyni. Jafnframt verður að gera ráð fyrir, að ríkið sjálft geti orðið eigandi einhverra tækja. Fari svo, er ákveðið, að þau tæki megi ekki selja með tapi, nema öll stjórnin sé sammála, eða Alþingi ákveði. Er slíkt til öryggis.
Um öflun þessara tækja er öllum gert jafnhátt undir höfði. og er ætlað, að í þessum efnum ríki fullt frelsi. Fari hins vegar svo, að viðskiptareglur annarra þjóða verði með þeim hætti, að Íslendingum sé farsælast eða jafnvel að eigi verði hjá komizt, að einn aðili fjalli um málið af Íslendinga hálfu, mun ríkisstjórnin að sjálfsögðu hníga að því ráði. Þarf mönnum ekki að bregða við slíkt hér á landi. Hér hefur í nær áratug innflutningur flestrar vöru verið bannaður, án sérstaks leyfis hins opinbera, og nú um skeið nær öll útflutningsvaran verið seld af umboðsmönnum ríkisvaldsins.
Komi til verulegra útgjalda ríkisins af þessum efnum, er ætlað að gera það með lántökum. Kemur þá til mála að skylda menn að taka þátt í þeim lánum, eða jafnvel til þátttöku í þeim fyrirtækjum, er ríkið stofnar til. Er fullkomlega réttmætt, að ríkisvaldið beiti sér fyrir því, að skjótfenginn auður sé þannig látinn þjóna því hlutverki að auka velsæld almennings í landinu.
Að þessari stjórn standa menn, sem hafa í grundvallaratriðum sundurleitar skoðanir á, hvaða þjóðskipulag henti Íslendingum bezt. Þeir hafa nú komið sér saman um að láta ekki þann ágreining aftra sér frá að taka höndum saman um þá nýsköpun atvinnulífs þjóðarinnar, sem ég hef lýst og er kjarni málefnasamningsins og byggð á því þjóðskipulagi, sem Íslendingar nú búa við. Það er svo ráð fyrir gert, að áfram haldist sú skipan, sem nú er á starfrækslu atvinnutækja í landinu. Rekstur einstaklinga, félaga, bæjar- og sveitarsjóða og ríkisins haldist. Í hve ríkum mæli hverju úrræði fyrir sig verður beitt, veltur að sjálfsögðu nú sem fyrr ýmist á framtaki hvers aðilans um sig eða þingviljanum, eins og hann hverju sinni er. Það er öllum þessum flokkum til lofs að hafa sýnt þann stjórnmálaþroska að láta eigi deilur um stefnur standa í vegi fyrir því mikilvæga höfuðhlutverki: nýsköpun atvinnulífs þjóðarinnar.
Ég hef þá lýst meginstefnu stjórnarinnar. Hún hnígur að því að leitast við að forðast, að hinn skjótfengni auður renni út í sandinn. Hún hnígur að því að leitast við að úthýsa því böli — atvinnuleysinu —, er oft og í vaxandi mæli hefur þjáð fjölda íslenzkra heimila og spillt liðan, heilsu og lífi sorglega margra.
Það hlutverk er stórbrotið og göfugt. Enginn mun dirfast að mæla því í gegn. Hitt er annað mál, hversu bjartsýnir menn eru á sigurhorfurnar.
Vík ég þá að öðrum viðfangsefnum stjórnar og þings og fyrirheitum, er ríkisstjórnin gefur. Varðandi setningu nýrra launalaga vill stjórnin segja það, að henni eru að vísu ljósir annmarkar á því, að slík löggjöf sé sett einmitt á þessum tímum. Hins vegar verður líka að viðurkenna, að tæplega verður lengur við unað það ástand, er nú ríkir í þessum efnum. Ár frá ári eru gerðar handahófsbreytingar á kjörum einstakra starfsmanna ríkisins, án þess að nokkurs samræmis sé gætt um kjör þeirra, er sömu eða svipuð störf inna af hendi. Afleiðing þessa er, að skapazt hefur áberandi misræmi, sem veldur réttmætri og stöðugt vaxandi óánægju. Verður eigi til lengdar staðið gegn því að færa þessi mál í heildarkerfi, og hefur stjórnin nú ákveðið að setja ný launalög, enda þótt því fylgi nokkur útgjaldaauki fyrir ríkissjóð.
Um breytingu á dýrtíðarlögunum er óþarft að ræða. Það mál hefur verið skýrt í blöðum og útvarpi og liggur því alveg ljóst fyrir.
Varðandi álagningu nýrra skatta er það eitt að segja, að óumflýjanleg nauðsyn knýr til þess. Mun innan skamms upplýst fyrir Alþingi öllu og almenningi í landinu, hversu þeir reikningar standa, og verður það enginn fagnaðarboðskapur.
Skattarnir verða lagðir á þá, sem mest hafa gjaldþolið. Jafnframt verður reynt að auka tekjur ríkissjóðs með því að skerpa eftirlit með skattaframtölum.
Þá hefur ríkisstjórnin ákveðið og tryggt því þingfylgi, að lögfest verði fullkomið kerfi almannatrygginga. Má vera, að sá ásetningur sæti gagnrýni einhverra, og skal ekki að þessu sinni langt út í það farið. Vafalaust neitar því enginn, að æskilegt sé, að Íslendingar fylgist með nágrannaþjóðunum í þessum efnum. Um hitt verður spurt, hvort við séum bærir að standa undir kostnaði af slíkri löggjöf. Úr því verður að sjálfsögðu reynslan að skera, og skal um það eitt sagt, að ef nýsköpun atvinnulífsins nær settu marki, verður hér á landi um lítið eða ekkert atvinnuleysi að ræða. Sá, sem því þorir að treysta, þarf ekki að óttast hina væntanlegu tryggingalöggjöf, því þá mun hvort tveggja, að hún kalli aðeins á hóflegan útgjaldaauka og að jafnframt verði þá fyrir hendi mikið gjaldþol skattþegnanna.
Varðandi aðrar yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar skal látið nægja að vísa til málefnasamningsins. Menn eru misjafnlega trúaðir á, að þetta samstarf blessist. Ég skil það vel. Ríkisstjórnin hefur sjálf sínar efasemdir. Einnig og ekki sízt vegna þess, að margt mun verða á okkar vegi, sem við nú eigum á enga von, og mundi þó ærinn vandi við það að ráða, sem við þykjumst sjá, að í vændum er.
En hverjum augum sem á þetta er litið, verða þeir vafalaust fáir, sem ekki viðurkenna, að nú var ekki margra góðra kosta völ. Í nær tvö ár hafði landið mátt heita stjórnlítið, vegna þess að samstarf var ekki milli stjórnar og þings. Hafði þegar af hlotizt mikið tjón, og verður þó eigi með tölum talið.
Framundan eru örlagaríkir tímar, sem kalla á snöggar ákvarðanir og samstillt átök. Friðarsamningarnir geta haft mikla þýðingu fyrir sjálfstæði þjóðarinnar. Efnahagsafkoman mun að mjög miklu leyti fara eftir þeim alþjóðasamningum, sem gerðir verða um verzlun og viðskipti þjóða á milli, og hverjum samningum Ísland kemst að við önnur ríki. Það ríður því á miklu, að svo verði um búið, að þessir samningar fari sem bezt úr hendi.
Jafnframt er höfuðnauðsyn að stöðva hinn áleitna vöxt dýrtíðarinnar í landinu.
Stjórn, sem ekki naut stuðnings Alþingis, en sat aðeins í skjóli flokkadeilna, var að sjálfsögðu hvorki fær um að sjá þessum nauðsynjum þjóðarinnar borgið né heldur að hefja þá nýsköpun, sem stjórn, er nýtur öruggs stuðnings þingmeirihlutans, ætti að reynast bær um að framkvæma.
Það er því alveg víst, að aldrei hefur Íslendingum verið meiri nauðsyn en einmitt nú að eyða, a.m.k. í bili, flokkarígnum og stéttabaráttunni og sameina kraftana til lausnar stærstu viðfangsefna.
Að lokum vil ég aðeins segja örfá orð, er ekki snerta stjórnina sem heild.
Í marga mánuði hefur Sjálfstæðisflokkurinn haft forustu um tilraunir til myndunar 4 flokka stjórnar. Held ég, að enginn neiti, að flokkurinn hefur innt það verk af hendi með þolinmæði og þrautseigju. Ég harma, að það bar ekki ávöxt.
Eftir að forseti Íslands hafði falið mér að mynda stjórn, og ég, með samþykki flokks míns, tekizt á hendur að gera tilraun til þess, sneri ég mér fyrst til Framsóknarflokksins, enda höfðu nokkrum sinnum, að frumkvæði Sjálfstæðisflokksins, farið fram samtöl milli samninganefnda þessara flokka um myndun stjórnar þessara tveggja flokka, ef ómögulegt reyndist að ná víðtækara samstarfi. Framsóknarflokkurinn neitaði að ganga í stjórn, er Sjálfstæðisflokkurinn myndaði, en bar í þess stað fram tillögu, sem Sjálfstæðisflokkurinn gat ekki fallizt á.
Ég sneri mér því til Alþýðuflokksins og Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins, og hafa þær samningaumleitanir nú leitt til stjórnarmyndunar.
Það var ég, sem strax í öndverðu bauð fram, að hver þeirra þriggja flokka, er saman starfa nú, hefði tvo ráðherra, alveg án hliðsjónar af þingmannafjölda hvers flokks fyrir sig. Það, sem fyrir mér vakir, er að slá því föstu að formi og efni, að hér starfi saman þrír aðilar, jafnir að rétti, skyldum og ábyrgð.
Það hafa gengið miklar sögur af þessum samningum og ekki allar trúlegar. Er ekki laust við, að þess hafi verið freistað að ófrægja alla, sem að þeim hafa staðið. Sjálfstæðisflokkurinn átti ýmist að hafa gleypt hina flokkana eða þeir hann. Reynt hefur og verið að dreifa út, að Alþýðuflokkurinn hafi látið hlut sinn fyrir Sameiningarflokki alþýðu — Sósíalistaflokknum, eða öfugt, alveg sitt á hvað eftir því, sem bezt hefur verið talið henta.
Nú hefur blæjunni verið svipt frá. Nú sjá menn framan í staðreyndir. Í okkar augum, sem að þessu stöndum, er hér á ferð alvarlegur ásetningur. Við slíðrum flokkssverðin. Við semjum vopnahlé um hríð. Við höfum ákveðið að sameina kraftana, í því skyni að freista þess að tryggja, að hinn óvænti gróði reynist eigi aðeins stundar víma, heldur grundvöllur nýrra athafna, nýrra afkomuskilyrða, nýs menningarlífs, breyttrar og bættrar afkomu fyrir þá þjóð, sem lengst af hefur búið ófrjáls og efnalega snauð í landi sínu, en nú hefur öðlazt frelsi og sæmileg skilyrði til góðrar efnahagsafkomu.
Herra forseti, — háttvirtu alþingismenn.
Á þessu ári höfum við Íslendingar endurreist lýðveldi á Íslandi. Þar með hefst nýtt tímabil í stjórnmálasögu þjóðarinnar.
Þeir, sem að ríkisstjórninni standa, vona einlæglega, að sú nýsköpun atvinnulífsins, sem nú á að hefjast, megi verða upphaf nýs velmegunartímabils í atvinnusögu þjóðarinnar.
Megi þær vonir rætast, svo að fjárhagsleg velgengni og öryggi festi og treysti hið endurheimta þjóðfrelsi.
Ríkisstjórnin væntir góðs samstarfs við alla háttvirta alþingismenn og biður um skilning þjóðarinnar og velvilja.