21.10.1944
Sameinað þing: 60. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2029 í B-deild Alþingistíðinda. (5614)
Stjórnarskipti
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. — Í sambandi við stjórnarmyndun þá, sem hér hefur verið tilkynnt, óska ég að taka fram eftirfarandi af hálfu þingflokks framsóknarmanna:
Framsfl. hefur allt frá því að kosningar fóru fram síðast gert það, sem hann hefur talið á sínu valdi, til þess að þingræðisstjórn gæti starfað í landinu.
Hann átti þátt í tilraunum til þess að mynda þjóðstjórn eftir kosningarnar 1942 og síðan tilraun til myndunar stjórnar með Alþýðuflokknum og Sósíalistaflokknum veturinn 1942–1943. Þær tilraunir leiddu ekki til stjórnarmyndunar af ástæðum, sem alkunnar eru.
Í júnímánuði s.l. voru gerðar tilraunir til myndunar fjögurra flokka ríkisstjórnar. Framsóknarflokkurinn var reiðubúinn til þess að taka þátt í slíkri stjórn, sem tæki við störfum að lokinni stofnun lýðveldisins, og setti ekki af sinni hálfu nein skilyrði, sem því urðu valdandi, að eigi varð af þeirri stjórnarmyndun.
Í ágústmánuði í sumar hófust aftur viðræður um myndun fjögurra flokka ríkisstjórnar og um málefnagrundvöll fyrir slíku samstarfi. Þessar viðræður stóðu yfir á annan mánuð eða lítið eitt fram í októbermánuð og stóðu þá þannig að dómi Framsfl., að engu var nær en í öndverðu um niðurstöðu í sumum þeirra mála, sem mestu varða og frá upphafi var ráðgert, að úrlausn þyrftu að fá. Átti þetta ekki hvað sízt við um vissa þætti dýrtíðarmálanna, einkum kaupgjaldsmálin og fjárhagsmálin.
Framsóknarflokkurinn lýsti þá yfir því, að hann teldi þýðingarlaust að halda áfram viðræðum þessum, nema eitthvað nýtt kæmi fram í samninganefnd flokkanna, sem gerði líklegra en áður, að samningar tækjust. Ekkert nýtt kom hins vegar fram, en samningum í þess stað hætt. Gáfu formenn þingflokkanna forseta Íslands skýrslu um málið.
Þegar Framsfl. þóttist sjá, að ekki yrði úr myndun fjögurra flokka stjórnar, var af hans hálfu rætt við formann þingflokks Alþýðuflokksins og formann Alþýðuflokksins og spurzt fyrir um það, hvort Alþfl. vildi taka upp samninga um myndun stjórnar þriggja flokka, Alþfl., Framsfl. og Sjálfstfl. Töldu þeir þýðingarlaust að hef ja slíkar viðræður. en ákveðið var, að þeir tilkynntu Framsfl., ef þeir vildu taka þær upp.
Eftir þetta gerði Framsfl. Sjálfstfl. tilboð um, að þessir tveir flokkar stæðu saman að ríkisstjórn, sem þannig væri mynduð, að hlutlaus maður hefði forsæti, en flokkarnir tilnefndu hvor um sig tvo menn í stjórnina. Þá var lagt til, að stjórnin og flokkarnir beittu sér m.a. fyrir framgangi mála, sem til voru tekin í tilboðinu.
Þetta tilboð var lagt fram um þær mundir, sem formanni Sjálfstfl. var falið að leitast fyrir um stjórnarmyndun, og var það rætt við Sjálfstfl. á einum fundi. Þeim fundi lauk þannig, að mönnum frá báðum flokkunum var falið að athuga tiltekin málefni og búa þau undir næsta viðtal um málefnagrundvöll og skipan ríkisstjórnar. Til þessa fundar skyldi að sjálfsögðu boðað af Sjálfstfl., þar sem formanni þess flokks hafði verið falið af forseta Íslands að hafa forgöngu um myndun meirihlutastjórnar á Alþingi.
Til þessa ráðgerða fundar var eigi boðað og ekki rætt síðan við Framsfl. um stjórnarmyndun. — Þá skal þess getið, að gefnu tilefni frá hæstv. forsrh., að Framsfl. hefur ekki móttekið á þessu Alþingi neitt tilboð frá Sjálfstfl. né formanni hans um málefnasamning að stjórnarmyndun þessara tveggja flokka, og því engu slíku boði hafnað.
Það er ekki vert að segja margt í dag um þá hæstv. ríkisstjórn, sem nú tekur við völdum, en þó er rétt að geta þess nú þegar, að Framsfl. vantreystir því, að henni takist að leysa þannig þau verkefni, sem nú eru mest aðkallandi, að þjóðin megi vel við una, en reynslan mun þó skera bezt úr í þessum efnum.