06.02.1945
Sameinað þing: 91. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 563 í D-deild Alþingistíðinda. (5642)
268. mál, flutningur hengibrúar frá Selfossi að Iðu
Eiríkur Einarsson:
Við flutning þessarar till. var reynt að setja málið þannig fram, að það þyrfti ekki að valda ágreiningi, þar sem með henni er einungis farið fram á rannsókn á því, hvort brúin muni henta, þegar hún verður óþörf á Selfossi, til endurbyggingar á brúarstæði hjá Iðu, og ef rannsókn leiddi það í ljós, að svo sé, þá verði heimilað, að hún verði þangað flutt og endurreist þar. Þetta er efni gr. og hvorki meira né minna. Í samræmi við þessar sanngjörnu óskir og að þarna er mikil nauðsyn á þessum framkvæmdum er till. borin fram. Ég er mjög þakklátur þeim, sem málið hefur heyrt undir til umsagnar og álits, hv. samgmrh. og vegamálastjóra, sem hafa mælt með samþ. till. hvor frá sínu sjónarmiði, og einnig vil ég þakka hv. fjvn., sem einróma hefur tekið í sama streng. Þetta mál hefur verið kynnt hér á hæstv. Alþ. fyrr, eins og tekið hefur verið fram af hv. frsm. fjvn., og það, sem fyrir vakir með því máli, er, eins og oft hefur verið tekið fram, að bæta úr nauðsyn brúargerðar hjá Iðu vegna almennrar samgönguþarfar og ekki sízt vegna læknissóknarferða um margar fjölbyggðar sveitir, og þessu máli hefur verið tekið með vinsemd og skilningi. En þar sem hv. 2. þm. N-M. vék að því, að það séu fleiri ár óbrúaðar, og nefndi sérstaklega til eina, þá er það síður en svo, að ég vilji vera að andmæla því, að svo sé. En ég vildi vænta þess, að rannsókn leiddi í ljós, að brúin gamla á Selfossi verði hæf til að bæta úr þörfinni á hinni sömu á þarna uppi á héraðinu, þar sem svo mikið liggur við. En ég segi það satt, að ef svo illa tækist til, að rannsókn leiddi í ljós, að brúin ekki hentaði á þessum stað, þá vildi ég, að hún gæti komið að haldi þar, sem þörf verður að nota hana. Um það, hvað rannsókn leiddi í ljós, er það að segja, að það væri barnalegt af mér, eins og það er barnalegt af hv. þm. N-M., að leiða getur að því, hvað slík rannsókn leiddi í ljós. Ég vil láta þessa rannsókn fara fram og vænti þess, að það eitt komi í ljós við hana, sem reynist bezt, og niðurstöðurnar vona ég verði í samræmi við þá hófsömu till., sem hér liggur fyrir, að ég vona til samþykkis hjá hæstv. Alþ. með þeim meðmælum, sem liggja fyrir frá hæstv. samgmrh. og hv. fjvn.