24.01.1945
Sameinað þing: 87. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 566 í D-deild Alþingistíðinda. (5650)
252. mál, rafveita Stykkishólms
Flm. (Gunnar Thoroddsen):
Í Stykkishólmi er rafveita með mótorstöð með tveimur gömlum vélum, sem eru nú nær því ónothæfar. Þær voru upphaflega 25 hestöfl, en skila nú ekki meira en 20 hestöflum. Mótorarnir eru mjög olíufrekir, annar talinn ónýtur og engir varahlutir fáanlegir. Vatnsvirkjun fyrir Stykkishólm hefur verið fyrirhuguð í Svelgsá, en álitið er, að hún verði ekki framkvæmd svo fljótt, að hún bæti úr þeirri brýnu þörf, sem er á að bæta úr rafmagnsmálum þorpsins. Hreppsn. Stykkishólms hefur beðið mig að flytja till. um ríkisábyrgð fyrir láni til að kaupa tvo mótora fyrir rafveituna í stað þeirra ónýtu og til að breyta spennunni úr 110 volt í 220. Ég hef ráðfært mig við forstjóra Rafmagnseftirlits ríkisins, Jakob Gíslason, og telur hann, að heildarkostnaður muni verða 400 þús. kr., og í samræmi við þá stefnu, sem fjvn. hefur aðhyllzt, að ábyrgð nemi ekki yfir 85% af kostnaði, þá hef ég sett í till. heimild fyrir 350 þús. kr., þó ekki yfir 85%.
Ég þarf svo ekki að hafa um þetta fleiri orð, en legg til, að till. verði vísað til síðari umr. og fjvn.