06.02.1945
Sameinað þing: 91. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 567 í D-deild Alþingistíðinda. (5662)
258. mál, rafveitur í Árnes- og Rangárvallasýslum
Frsm. (Helgi Jónasson):
Ég ætla ekki að hafa mörg orð um þessar till. Þær hafa sætt sömu meðferð í fjvn. og aðrar till. svipaðs eðlis. Við till. á þskj. 854 var brtt. á þskj. 867, sem einnig var tekin til meðferðar af n. N. hefur rætt við samgmrh. og leitað umsagnar Rafmagnseftirlits ríkisins og að því athuguðu komið sér saman um að mæla með því, að till. verði samþykktar með þeirri brtt., sem hér er getið um á þskj. 1026, og nákvæmlega í samræmi við aðrar till., sem á undan eru gengnar um sama efni.