24.01.1945
Sameinað þing: 87. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 570 í D-deild Alþingistíðinda. (5679)

249. mál, raforkuveita til Dalvíkur

Flm. (Garðar Þorsteinsson):

Herra forseti. — Það hefur áður komið fram þáltill. og verið samþ. á Alþ. viðkomandi raflögn frá Akureyri til Dalvíkur. Og þessi þáltill. er flutt í beinu áframhaldi af þeirri samþykkt.

Það hefur farið fram athugun á því að leggja rafmagnsleiðslu frá Akureyri til Dalvíkur. Og mér hefur skilizt af fyrrverandi stjórn, sem hafði þetta mál til athugunar, að þessi lína mundi verða lögð næst á eftir Keflavíkurlínunni, sem er verið að leggja.

Hér er um leið að ræða, þar sem þrjár síldarverksmiðjur eru starfandi, og þær mundu nota mikið rafmagn á þeim tíma, sem þörfin er minnst fyrir rafmagn á Dalvík. Auk þess liggja þarna að fjögur sjávarpláss, sem að sjálfsögðu mundu öll hafa mikil not rafmagns til venjulegra nota og til iðnaðar. Það mun vera gert ráð fyrir, að lýsisherzlustöð verði sett upp e. t. v. á Hjalteyri, og þá er að sjálfsögðu nauðsynlegt, að rafmagn verði leitt þangað, og mundi línan liggja þar um.

Ég vil leyfa mér að óska þess, að þessari umr. verði frestað og málinu verði vísað til hv. fjvn.