04.10.1944
Sameinað þing: 51. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 377 í B-deild Alþingistíðinda. (571)
143. mál, fjárlög 1945
Forseti (GSv):
Þessari útvarpsumr. verður hagað skv. ákvæðum 51. gr. þingskapa, þar sem segir, að útvarpa skuli framsöguræðu fjmrh. um frv. til fjárl. og, — ef óskað er, — hálfrar stundar ræðum af hálfu annarra þingflokka, enda hefur fjmrh. þá og rétt til stundarfjórðungs svarræðu.
Þetta verður látið fara fram og einnig, þegar fjmrh. hefur lokið fyrri ræðu sinni, munu verða nokkrar umr. af hálfu þingflokkanna, eftir því sem tilkynnt hefur verið.
Þá tekur til máls hæstv. fjmrh., Björn Ólafsson.