21.02.1944
Neðri deild: 15. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2033 í B-deild Alþingistíðinda. (5718)
Sextugsafmæli tveggja þingmanna
Gísli Sveinsson:
Eins og hv. þm. er kunnugt, á okkar mæti forseti í Nd., Jörundur Brynjólfsson, 60 ára afmæli í dag. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að færa honum fyrir hönd alþm. alúðarþakkir fyrir góð störf og gegn og ekki sízt fyrir hans ágætu framkomu í forsetasæti bæði fyrr og síðar. Vil ég biðja hv. þm. rísa úr sætum til þess að votta hinum sextuga forseta, þó enn ungum, virðingu sína og beztu framtíðaróskir. — [Deildarmenn stóðu upp.]