06.09.1944
Neðri deild: 45. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2034 í B-deild Alþingistíðinda. (5726)
Minning látinna manna
forseti (JörB):
Áður en fundarstörf hefjast að þessu sinni vil ég minnast fyrrv. þingmanns, sem lengst af átti sæti í neðri deild, Þórarins Jónssonar, bónda á Hjaltabakka. Hann andaðist að heimili sínu í gær, 74 ára að aldri. Hann var konungkjörinn þingmaður 1905–1907, þingmaður Húnvetninga 1911–1914 og 1916–1923 og Vestur-Húnvetninga, eftir að sýslunni var skipt í tvö kjördæmi, 1923–1927.
Þórarinn Jónsson fæddist 6. febr. 1870 í Geitagerði í Skagafirði, og voru foreldrar hans Jón Þórarinsson, bóndi þar, og kona hans Margrét Jóhannsdóttir bónda á Kjartansstöðum Guðmundssonar. Hann stundaði nám í búnaðarskólanum á Hólum og útskrifaðist þaðan 1890. Síðar varð hann kennari við þann skóla og hafði þá kennslu á hendi árin 1893–1896. Hann reisti bú á Hjaltabakka 1896 og bjó þar til dauðadags. Hreppstjóri var hann í sveit sinni frá 1906 og hreppsnefndaroddviti frá því um aldamót til 1920. Fjöldamörg önnur trúnaðarstörf voru honum og falin í þarfir lands og héraðs. Má þar nefna, að hann var um síðastliðin 30 ár í stjórn Kvennaskólans á Blönduósi og formaður hennar frá 1920. Þá átti hann og um langt skeið sæti í fræðslunefnd og sáttanefnd. 1927 var hann skipaður í milliþinganefnd í landbúnaðarmálum, og undirbjó sú nefnd m.a. ábúðarlögin nýju, er sett voru 1933 og verið hafa að mestu óbreytt siðan.
Þórarinn Jónsson var atkvæðamaður á þingi, mælskur og mikilhæfur, skapstór og lét ekki hlut sinn við hvern sem var að eiga. Hann átti lengi sæti í fjárveitinganefnd neðri deildar og var framsögumaður hennar á mörgum þingum. Hann var og framsögumaður launamálanefndarinnar 1919, og var þar við brugðið skörungsskap hans og viðsýni. Einnig má nefna, að hann hafði framsögu af hendi landbúnaðarnefndar neðri deildar um jarðræktarlögin, þegar þau voru fyrst sett, 1923. Hann lét og mörg önnur þjóðmál til sín taka, einkum landbúnaðarmál, fjármál og samgöngumál.
Með Þórarni Jónssyni er til moldar hniginn einn hinna merkustu manna í íslenzkri bændastétt, og vil ég biðja háttvirta þingdeildarmenn að votta minningu hans virðingu sina með því að rísa úr sætum. — [Deildarmenn risu úr sætum.]