24.01.1945
Sameinað þing: 87. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 588 í D-deild Alþingistíðinda. (5730)
242. mál, vinnuhæli berklasjúklinga
Helgi Jónasson:
Ég skal ekki hafa mörg orð um þetta fyrirhugaða embætti, því að ég býst við, að þáltill. fari til þeirrar n., sem ég á sæti í.
Maður sér það, að þessi þáltill. mun eiga allmikið fylgi hér á hæstv. Alþ., þar sem ekki eru færri en 14 þm., sem flytja hana. Má segja kannske, að það sé að vonum, því að ég býst við, að allir séu sammála um það, að þessi stofnun sé þörf og góð, sem hér er um að ræða. En mér finnst það dálítið einkennileg aðferð, ef Alþ. og íslenzka ríkið á að fara að launa forstjóra eða lækna við einkafyrirtæki. Þessi stofnun mun enn þá vera algerlega einkastofnun. Og ég veit ekki dæmi þess, að ríkið hafi gengið svo langt eins og hér er stefnt að. Þykir mér einkennilegt, ef ríkið á nú að fara að ganga inn á þessa braut. — Ég er hins vegar mjög hlynntur því, að þessari stofnun verði veittur einhver rekstrarstyrkur, sem svaraði þeirri upphæð, sem hér er farið fram á.
Í öðru lagi finnst mér þessi þáltill. vera — ég vil segja — flott í launakjörum. Því að þessi læknir, sem á að taka við yfirlæknisstörfum á þessu berklasjúklingaheimili, á að fá eftir till. sömu laun nú strax í byrjunarlaun eins og yfirlæknar hafa við heilsuhælin á Vífilsstöðum og Kristnesi. Þarna á berklasjúklingaheimilinu verður a. m. k. fyrst um einn ekki um að ræða nema örfáa sjúklinga, og gert er ráð fyrir, að nú muni tilbúin um 20 rúm. Og það kann vel að vera, að á næstunni verði fjölgað eitthvað þar rúmum. En mér finnst það nokkuð mikið í lagt, að þessi læknir, sem þarna á að vera, fái strax í byrjun sömu laun og gamlir og reyndir yfirlæknar við heilsuhælin á Vífilsstöðum og Kristnesi. Við höfum hér í Reykjavík stofnun, sem heitir Heilsuverndarstöð Líknar, og þar er búinn að starfa í fjöldamörg ár dr. med. Óli Hjaltested. Og hann hefur ekki eins há laun og lagt er hér til, að þessi yfirlæknir við vinnuheimili berklasjúklinga hafi. Virðist mér þarna gæta nokkurs ósamræmis, ef athuguð eru launakjör þessara manna, sem annar hefur og hinum eru ætluð. Enn fremur eru yfirlækninum hjá Líkn veitt laun að hálfu frá ríkinu, en að hálfu frá Reykjavíkurbæ. Og mér finnst frá hálfu ríkisins það hægt að ganga lengst í að launa yfirlækni þessa vinnuheimilis, að honum verði ekki launað af ríkínu nema að nokkru leyti, en að stofnunin sjálf launi hann að vissum hluta.
Mun ég í fjvn. gera till. í samræmi við það, sem ég hef nú tekið fram, að þessari stofnun verði veittur rekstrarstyrkur sem svarar launum eins læknis eða kannske jafnvel meira. Um það skal ég ekki deila. En inn á það mun ég ekki ganga, að ríkið launi yfirlækninn við þessa stofnun, án þess það hafi íhlutunarrétt um það, hvaða manni þetta embætti er veitt. En í raun og veru hygg ég, að þess verði ekki langt að bíða, að þessi stofnun komi yfir á ríkið. Og þá fær ríkið sannarlega að launa yfirlækninn þar, ásamt fleira. Ég er ekki á móti því, að þessi stofnun verði af ríkinu tekin á einhvern hátt. En að hafa þessa aðferð, sem í þáltill. er gert ráð fyrir, tel ég ekki heppilegt.